Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2026 15:30 Eldflaugar á himni yfir Ísrael. AP Photo/Ohad Zwigenberg) Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana.
Heimildarmenn Washington Post í stjórnsýslu Bandaríkjanna, sem hafa séð skjöl frá leyniþjónustum Bandaríkjanna um að Rússar séu að deila upplýsingum með Íran, segja upplýsingar þessar meðal annars snúa að því hvar finna megi herskip, herþotur og hermenn. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, var fyrr í vikunni spurður út í aðkomu Rússa eða Kínverja, sem eru bandamenn Íran. Hann svaraði á þá leið að þeir skiptu í raun ekki máli að svo stöddu. Bandaríkjamenn hafa lengi útvegað Úkraínumönnum sambærilegar upplýsingar um Rússa. Íran hefur einnig eitt Rússum umfangsmikinn stuðning við innrásina í Úkraínu og þá sérstaklega hvað varðar sjálfsprengidróna. Þá fengu Rússar upprunalega frá Íran. Embættismennirnir segja að umfang aðstoðarinnar sé ekki ljóst en árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Írani hafi komið verulega niður á getu þeirra síðastnefndu til að finna skotmörk upp á eigin spýtur. Íranir hafa skotið hundruð eldflauga á ýmis skotmörk í nágrannaríkjum sínum og notast við þúsundir sjálfsprengidróna. Þessar árásir hafa valdið nokkru tjóni og hafa sumar þeirra beinst að hernaðarinnviðum Bandaríkjanna á svæðinu, eins og stjórnstöðvum, ratsjám og öðru slíku. Að minnsta kosti sex bandarískir hermenn og nokkrir til viðbótar særðust í einni slíkri árás á sunnudaginn. Þá var einnig gerð árás á starfstöð Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í Sádi-Arabíu á dögunum. Sérfræðingur í málefnum rússneska hersins segir árásir Írana hafa verið mjög markvissar gegn stjórnstöðvum og ratsjám. Íranir búi ekki yfir mörgum gervihnöttum sem nýtast í hernaði og því væru upplýsingar úr gervihnöttum Rússa mjög mikilvægar Írönum. Árásir Írana hafa þótt betri og skilvirkari en áður og hafa drónar og skotflaugar þeirra ítrekað komist gegnum loftvarnir.
Íran Rússland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Skipti ekki máli hvaðan olían er Framkvæmdastjóri N1 segir mikilvægt að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi byggi á staðreyndum. Olíufélögin hafa verið nokkuð gagnrýnd vegna verðhækkana í kjölfar árása á Íran, meðal annars af þingmanni og FÍB. 6. mars 2026 14:44 Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. 6. mars 2026 14:19 Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur. 6. mars 2026 10:32 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Skipti ekki máli hvaðan olían er Framkvæmdastjóri N1 segir mikilvægt að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi byggi á staðreyndum. Olíufélögin hafa verið nokkuð gagnrýnd vegna verðhækkana í kjölfar árása á Íran, meðal annars af þingmanni og FÍB. 6. mars 2026 14:44
Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag verði gert við klerkastjórnina í Íran. Alger og skilyrðislaus uppgjöf sé það eina sem komi til greina. Eftir að búið sé að velja nýja(n) ásættanlega(n) leiðtoga landsins, sem hann segist vilja fá að velja, geti uppbygging Íran hafist. 6. mars 2026 14:19
Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur. 6. mars 2026 10:32