Sjaldan launar kálfurinn ofeldið Guðmundur Kristján Jónsson skrifar 7. mars 2026 20:00 Í hugum flestra felur hugtakið byggðaverkefni í sér sértækar aðgerðir og samstarf sem ætlað er að styrkja innviði, fjölga atvinnutækifærum og auka lífsgæði í tilteknum byggðarlögum eða landshlutum. Verkefni af þessum toga eru yfirleitt óhagnaðardrifin og fjármögnuð með skattfé eða opinberum styrkjum, með misjöfnum árangri. Uppbygging Siglufjarðar á síðustu árum hefur hins vegar að verulegu leyti farið fram með öðrum hætti. Þar hefur einkaframtakið og fjárframlög einstaklings gegnt lykilhlutverki í þeim uppgangi sem samfélagið hefur upplifað. Einkaframtak knýr uppbyggingu Róbert Guðfinnsson hefur á síðasta áratug staðið að uppbyggingu á innviðum og atvinnulífi á Siglufirði fyrir milljarða króna. Sú fjárfesting hefur skapað fjölda starfa, meðal annars fyrir ungt og vel menntað fólk, og breytt ásýnd bæjarins til hins betra. Hún hefur jafnframt skapað ný tækifæri til sóknar fyrir sveitarfélagið. Fjallabyggð hefur ekki aðeins hvatt til og stutt við þessa uppbyggingu heldur einnig skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum, meðal annars í skipulags- og umhverfismálum. Grunnurinn að þeim skuldbindingum er samkomulag milli einkahlutafélags í eigu Róberts og Fjallabyggðar frá árinu 2012. Þar er meðal annars kveðið á um skyldur aðila, tryggingar fyrir efndum og lausn ágreiningsmála. Samkomulagið laut að uppbyggingu sem ætlað var að auka fjölbreytni í þjónustu fyrir íbúa og ferðamenn, bæta ásýnd bæjarins og styrkja útivistarsvæði á Siglufirði. Með réttmætar væntingar um skipulagsgerð, hönnun og uppbyggingu nýs miðbæjar og útivistarsvæðis á Leirutanga var ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar og framkvæmdir yfir margra ára tímabil. Enginn þarf að velkjast í vafa um efndir þeirra skuldbindinga sem snúa að Róberti og tengdum félögum. Við smábátahöfnina stendur í dag eitt glæsilegasta hótel landsins, í nágrenni við nýuppgerða veitingastaði og samkomuhús. Sjálfseignarstofnun var stofnuð til að byggja upp nýjan golfvöll og styðja við uppbyggingu skíðasvæðisins í Skarðsdal. Til þeirra verkefna lagði Róbert alls 300 milljónir króna, sem jafngildir um 500 milljónum á núvirði. Framlag sveitarfélagsins fólst meðal annars í landsvæðum, mannvirkjum og um 30 milljónum króna. Útkoman er glæsileg uppbygging frístundamannvirkja og útivistarsvæða sem samfélagið allt nýtur góðs af. Óuppfyllt loforð sveitarfélagsins Sömu sögu er hins vegar ekki hægt að segja um þá þætti sem voru á ábyrgð sveitarfélagsins. Miðbærinn stendur að mestu óbreyttur og að undanskildum stuttum og endaslepptum göngustíg er Leirutanginn enn að stórum hluta malarflag og athafnasvæði óþrifalegs iðnaðar, þvert á þær hugmyndir og fyrirheit sem lagðar voru til grundvallar byggðaverkefnisins sem samkomulagið kvað á um að líta skyldi á sem eina heild. Ástæða þessara skrifa er sú að á dögunum var framangreind sjálfseignarstofnun, Leyningsás, leyst upp. Ef marka má bókanir bæjarfulltrúa Fjallabyggðar í fundargerð bæjarstjórnar frá 26. febrúar síðastliðnum má ætla að ekki standi til að efna framangreint samkomulag að hálfu sveitarfélagsins, þrátt fyrir þau fyrirheit og skuldbindingar sem áður voru gefin. Forsaga þessa máls er í raun efni í heila bók. Undirritaður þekkir málið vel eftir að hafa átt sæti í sáttanefnd sem starfaði árið 2020. Að baki hluta þeirrar uppbyggingar sem Siglufjörður hefur upplifað á síðustu árum liggur sorgarsaga sem einkennist af málaferlum, ítrekuðum og árangurslausum sáttaumleitunum og ágreiningi um ábyrgð og efndir samkomulagsins sem hafði alla burði til að verða fyrirmynd að farsælu samstarfi einkaaðila og hins opinbera. Traust sem grundvöllur samstarfs Eftir stendur þó stærri spurning. Er það áhættunnar virði fyrir samfélagslega þenkjandi fjárfesta og fyrirtæki að ganga til samninga við sveitarfélög um uppbyggingu á samfélagslegum innviðum ef ekki er tryggt að staðið verði við skuldbindingar beggja aðila? Traust er einn mikilvægasti grunnur hvers samstarfsverkefnis. Þegar slíkt traust brestur hefur það áhrif langt út fyrir einstök verkefni eða eitt sveitarfélag. Í stað þess að verða fyrirmynd að metnaðarfullri uppbyggingu á landsbyggðinni bendir því miður allt til þess að eitt áhugaverðasta byggðaverkefni síðari ára verði að víti til varnaðar. Þá reynist hið fornkveðna enn eiga við: sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Höfundur er skipulagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjallabyggð Byggðamál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar