Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2026 16:26 Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag. Vísir/Getty Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran.
Talsmaður forsætisráðherrans Starmer sagði frá samtali hans við Trump en þeir ræddu málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjanna í stríðinu gegn Íran. Þá kom Starmer á framfæri innilegum samúðarkveðjum til Trump og bandarísku þjóðarinnar vegna þeirra sex bandarísku hermanna sem féllu í árásum í Kúveit fyrir viku. Samtal leiðtoganna á sér stað í kjölfar þess að Trump lýsti Bretum sem „fyrrum frábærum bandamanni“ og sagði Bandaríkjamenn „ekki þurfa bandamenn eftir að hafa unnið stríðið“. Starmer svaraði og sagði Breta þurfa alvörugefni en ekki að spila pólitíska leiki og í grein í Sunday Mirror sagði Starmer að Bretar einbeittu sér að því að verja Breta bæði heima og erlendis. Vopnahlé myndi ekki halda Þá sagði utanríkisráðherra Írana, Abbas Araghchi, í samtali við bandarísku sjónvarspstöðina NBC í dag að landið þyrfti að halda áfram að berjast í þágu fólksins í landinu. Araghchi sagði jafnframt að vopnahlé myndi ekki halda og að Bandaríkjamenn og Ísraelar hafi brotið vopnahlé sem batt endi á tólf daga stríð á síðasta ári og sagði að endanleg lok á stríði væri eina lausnin. Ekki hefur verið tilkynnt hver sé nýr leiðtogi Írans sem kjörinn var í morgun en sex særðust í Tel Aviv eftir flugskeytaárás Írana í dag og þá greindi ísraelski herinn frá víðtækum árásum á skotmörk í Theran og fleiri staði í Íran. Óljósar tölur um fjölda látinna Þá birti BBC yfirlit yfir fjölda látinna í stríðinu eftir löndum. Samantektin byggir á yfirlýsingum fulltrúa landanna en tölurnar hafa ekki verið staðfestar af opinberum aðilum. Amir Saeid Iravani, sendiherra Íran hjá Sameinuðu þjóðunum sagði á föstudag að 1332 óbreyttir borgarar hefðu látist í sprengjuárásum Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og heilbrigðisráðuneyti Líbanon jafnfram að 394 hefðu látist þar, þar af 83 börn. Í Ísrael hafa tíu látist og tæplega tvö þúsund manns verið fluttir á sjúkrahús að sögn yfirvalda þar í landi og þá létust sex bandarískir hermenn í árás á bandaríska herstöð í Kúveit á sunnudag fyrir viku. Fjórir eru látnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, fimm í Kúveit og einn í Barein.
Íran Bandaríkin Bretland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Kúveit Sameinuðu arabísku furstadæmin Barein Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira