Innlent

Sex snjó­flóð fallin og veginum lokað

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Úr myndavél Vegagerðarinnar.
Úr myndavél Vegagerðarinnar. Vegagerðin

Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. 

„Þau eru að falla núna, það eru komin sex snjóflóð sem ná alveg yfir veginn,“ segir Emil A. Sigurðsson, vaktstjóri á vaktstöð Vegagerðarinnar á Vestfjörðum.

Nú stendur yfir vinna við að koma öllum af veginum og verður honum svo lokað klukkan hálf 12. Enginn hefur orðið undir snjóflóði. Þá verður Ísafjarðardjúp ekki mokað.

„Það er bæði erfið færð þar og svo dettur niður tilgangur þegar Súðavíkurhlíð er lokuð.“

Emil bendir einnig á að Dynjandisheiði gæti lokað með skömmum fyrirvara. Henni verður lokað að loknum þjónustutíma, jafnvel fyrr.

Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og í Breiðafirði. Klukkan sex í kvöld fer einnig gul veðurviðvörun í gildi á Faxaflóa.

Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×