Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson skrifar 13. mars 2026 06:32 Þess misskilnings gætir að Evrópusambandið sé hinn eini sanni boðberi mannréttinda, í breiðri merkingu þess orðs, í heiminum. Það er ekki svoleiðis. Í þessari grein er fjallað um hvernig Evrópusambandið gengur út á markaðsvæðingu samfélagsins í þágu þeirra sem eiga en á kostnað þeirra sem lítið eiga annað en sjálfa sig. Saga er sögð af verkafólki í fataiðnaði í Moldóvu. Í viðtali við Clean Clothes Campaign (CCC) segir Natalia, 28 ára verkakona í fataiðnaði, frá því að með sameiginlegum launum sínum og eiginmanns síns sem vinnur í byggingariðnaði nái þau að skrapa saman nægu fé einungis fyrir ítrustu nauðsynjum. Þau eru ekki ein a báti því lífskjör verkafólks í Moldóvu eru með því allra lakasta sem gerist í Evrópu. Evrópusambandið (ESB) hefur greitt leið stórfyrirtækja innan aðildarlanda sinna til nýta sér þessi bágu kjör og vinnuréttindi. Fataframleiðsla sem fram fer í Moldóvu kemur nefnilega frá hönnuðum og fyrirtækjum innan ESB, aðallega Ítalíu, en samningur Moldóvu og ESB sem var undirritaður 2014 fól ísér aðgang Moldóvu að fríverslunarsvæði sambandsins með skuldbindingu um viðskipti. Í stað þess að framleiðslan fari fram í Asíu, þá fer hún fram á jaðri ESB. Með þessu halda fyrirtæki framleiðslukostnaði niðri án þess að þurfa að greiða hærri laun. Á sama tíma veitir ESB Moldóvu aðgang að sínum innri markaði á þann hátt að vera framleiðsluríki og njóta tollfríðinda. Með þessari leið fer Evrópusambandið framhjá reglum sínum um vinnuréttindi. Þannig heimila þau útvistun til landa þar sem laun eru lág, réttindi eru brotin og staða verkafólks almennt veik. Vinnuréttalöggjöf ESB er eins og annað á þeim bænum á markaðslegum forsendum. Tryggja beri samkeppnishæfni fyrirtækja fremur en réttindi verkafólks. Þannig falla vinnustaðaharka og kjarasamningsbrot sem framin eru í Moldóvu ekki undir vinnuréttarstaðla ESB. Raunar nýtir Evrópusambandið sér veikleika í stjórnkerfi Moldóvu sem bitnar á því fólki sem starfar innan fataiðnaðarins í Evrópu á meðan eigendur ítalskra fyrirtækja fitna eins og púki í fjósi. Evrópusambandið sníður sitt kerfi eftir forskrift þeirra ríku og á kostnað venjulegs vinnandi fólks. Ísland á ekki að vera hluti af slíku kerfi. Ísland með sjálfstætt vinnumarkaðsmódel Ísland er formlegur hluti af innri markaði Evrópusambandsins í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) ásamt Noregi og Lichtenstein. Íslensk lög tryggja kjör og réttindi fólks á flestum sviðum. Um inntakið er vissulega samið en afraksturinn er oftar en ekki lögfestur. Lífeyrisréttindi eru þannig tryggð í gegnum lög svo og orlofs- og veikindaréttindi ásamt því að á Íslandi er fólki tryggt í gegnum lög um stéttarfélög og vinnudeilur réttur til þess að berjast fyrir kjörum sínum almennt. Þetta verður að hafa í huga þegar Ísland skoðar það að verða formlegur hluti af Evrópusambandinu í heild sinni. Almennt eru nefnilega réttindi starfsfólks öruggari innan íslenskra laga en innan þeirra laga sem eru í gildi á sviði Evrópusambandsins. Ástæðan fyrir því er sú að kjarasamningar eru bundnir í lög á Íslandi og stéttarfélagsaðild er hvergi meiri í gjörvöllum heiminum. Það er almennt ekki svo hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins. Launafólk á Íslandi er í miklu frekari snertingu við sín réttindi en launafólk í Evrópu vegna þessa. Í nokkrum ríkjum ESB er þó stéttarfélagsaðild há en möguleikarnir á kjarabótum verða þó alltaf háðir þeim skorðum sem Maastricht samningurinn setur þeim. Eitt helsta markmið Maastricht-samningsins er að vernda gjaldmiðilinn, evruna, en á kostnað launafólks þegar svo ber undir. Kröfur um kjarabætur stétta er alltaf steyptar í mót verðstöðugleikans. Það er meðal annars hægt að sjá í hinu norræna vinnumarkaðsmódeli. Sú leið er eitthvað sem íslensk verkalýðshreyfing hefur blessunarlega blásið frá sér. Markaðsvæðing vinnumarkaðarins hefur verið á þá leið að búa til sveigjanlegan vinnumarkað fyrir gjörvallt Evrópska efnahagssvæðið og eins og fyrr segir í greininni, jafnvel fyrir gjörvalla Evrópu. Þessi sveigjanleiki var kynntur með áróðri um félagslegar áherslur, að fólk gæti sótt vinnu þar sem hagvöxtur væri og laun hærri. Staðreyndin er þó sú að fjórfrelsi Evrópusambandsins hefur molað sundur réttindi. Sveigjanlegur vinnumarkaður var markmiðið og væru réttindi verkafólks hindrun þar í vegi yrði sú hindrun að víkja. Maastrict-samningurinn gerði það að verkum að vinnumarkaðsmál eru orðin eins og margt annað innan ESB, miðstýrt frá Seðlabanka Evrópu og framkvæmdastjórnar sambandsins. Sameiginlegur vinnumarkaður var markmiðið og þangað er ESB komið, á kostnað verkalýðsins. Með inngöngu Íslands í Evrópusambandið myndi Ísland þurfa að aðlaga sig að kerfi Evrópusambandsins í þessum efnum. Íslenskt launafólk væri steypt í markaðslaunamódel þar sem stéttabarátta láglaunafólks myndi veikjast verulega ef þá ekki með öllu leggjast af. Evrópusambandið snýst ekki um réttindi heldur markaðsvæðingu alls samfélagsins þar sem hið raunverulega stjórnvald er stórkapítal Evrópu. Það ræður ríkjum þegar upp er staðið. Á Íslensk alþýða ekki nóg með sitt eigið auðvald? Höfundur er stjórnmálafræðingur, sjómaður og stjórnarmaður í samtökunum Til Vinstri við ESB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar