Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. mars 2026 13:58 Dóra Sif Tynes starfaði lengi í Evrópudómi. Vísir/Samsett Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur.
Dóra Sif Tynes lögmaður og fyrrverandi forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA í Brussel og Eiríkur Svavarsson hæstaréttarlögmaður tókust á um Evrópumálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna framundan í Sprengisandi í morgun. Eiríkur segir villandi að tala um órætt innihald pakkans eins og ríkisstjórnarliðum hefur verið tíðrætt um undanfarið. Innihald hans liggi fyrir og hafi gert lengi. Það séu ekki varanlegar undanþágur frá þessu regluverki. Innleiðing EES-reglugerða jafngildi því engan veginn að ferlinu sé lokið. „Frá því að EES-samningurinn tók gildi og þangað til 2016 var meðaltal upptökutilskipana og gerða Evrópusambandsins inn í EES-samningnum 13,4 prósent á öllum þessum tíma. Þessi fullyrðing um það að það sé búið að taka meira eða minna þetta regluverk Evrópusambandsins stenst enga skoðun,“ segir hann. Dóra Sif segir að upptökutölfræði sem þessi sé ekki gagnleg og bendir á að ákvarðanir um stakar styrkjagreiðslur til fyrirtækja séu þar taldar með. „Þetta er núanseraðri spurning en svo vegna þess að við erum með kerfi í EES-samningnum sem á að koma í stað beinna réttaráhrifa sem kallar á skilyrðislausa innleiðingu reglna. Við erum með reglur í EES-samningnum um trúnaðarskyldu, um samræmda túlkun, um aðrar leiðir til að gæta þess að sömu reglur gilda því það er grunnurinn. Mörgum myndi hugnast það að geta reitt sig á Evrópureglur fyrir dómi og að þær hefðu forgang. Evrópureglurnar eru líka landslög. Þær yrðu innan sambandsins samþykktar í sameiningu við aðrar Evrópuþjóðir þannig að þetta er ekki svart og hvítt,“ segir Dóra Sif.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira