Saman byggjum við von Steinunn Bergmann skrifar 17. mars 2026 09:17 Í dag 17. mars er Alþjóðadagur félagsráðgjafar og í tilefni dagsins taka félagsráðgjafar um allan heim höndum saman og minna á sameiginleg skilaboð. Í ár snúast þau um að byggja saman von og sátt: Harambee-ákall til að sameina klofið þjóðfélag. (e. Co-Building Hope and Harmony: A Harambee Call to Unite a Divided Society). Harambee er swahilísk orðtak um samstarf og samhjálp sem hvetur okkur til að koma auga á þær mikilvægu breytingar sem verða þegar fólk vinnur saman. Við sjáum þess merki allt í kringum okkur þegar vel er að gáð. Að sama skapi leysum við ekki þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir um allan heim með einni manneskju, fagstétt eða þjóðfélagi. Félagsráðgjafar eru til staðar á öllum sviðum samfélagsins og um allan heim. Þeir starfa til dæmis á sjúkrahúsum og skólum, í félagsþjónustu sveitarfélaga og fangelsum, meðal flóttafólks, fatlaðra og aldraðra. Þeir ganga með fólki á erfiðustu stundum þess og hjálpa því að finna leiðina áfram. Þessi nálgun, að vera við hlið annarra frekar en að leiðbeina að ofan, er kjarni fagmennsku og áherslu á mannréttindi sem einkennir starfið. Hér á landi standa félagsráðgjafar frammi fyrir margþættum áskorunum, svo sem vaxandi þrýstingi á þjónustukerfi, húsnæðisvanda sem bitnar harðast á þeim sem eru þegar í viðkvæmri stöðu og sífellt meiri þörf fyrir velferðarþjónustu á öllum sviðum, ekki síst geðheilbrigðisþjónustu. Á alþjóðavísu er myndin sambærileg þar sem loftslagsbreytingar, flótti undan stríðsátökum og efnahagslegt ójafnræði krefst þess að réttlæti og sjálfbærni séu í huga allra þeirra sem vinna að velferð einstaklinga. Velferðarmál og umhverfismál tengjast órjúfanlegum böndum. Mannleg reisn, þátttaka í lýðræðislegu samfélagi, friður og sjálfbærni eru ekki aðskilin markmið heldur samofin heild. Félagsráðgjöf sem faggrein ber þar sérstaka ábyrgð en ekki er hægt að tala um velferð einstaklingsins án þess að horfa til þess umhverfis og þeirra kerfa sem hann lifir í. Grundvöllur félagsráðgjafar er virðing fyrir manngildi og sérstöðu hvers einstaklings og trú á getu hans til að nýta hæfileika sína til fullnustu. Fagmennska í félagsráðgjöf þýðir að standa vörð um mannréttindi, ekki bara í orðum heldur í hverri ákvörðun, hverju samtali og hverri skýrslu. Það þýðir að byggja upp tengsl sem eru grundvöllur allra breytinga. Tengsl milli einstaklinga og fjölskyldna, milli borgara og þjónustustofnana, milli samfélaga og ríkisvaldsins. Án þessara tengsla er engin sjálfbær lausn möguleg. Á alþjóðadegi félagsráðgjafar 2026 hvetjum við öll til þess að ganga lengra en faglegar skyldur krefjast, að vera meðvituð um hvernig við tengjumst öðrum, hvernig við hlustum, hvernig við eflum von. Þegar við stöndum saman, og gerum það af heiðarleika og með samkennd, er engin áskorun of stór. Höfundur er félagsráðgjafi MPA og formaður FÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar