Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Íris Róbertsdóttir, Kristinn Jónasson, Björn Ingimarsson, Björg Ágústsdóttir og Gerður Björk Sveinsdóttir skrifa 17. mars 2026 12:48 Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars. Þar munu Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar, Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets, Gestur Pétursson forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar og Hanna Björg Konráðsdóttir skrifstofustjóri Raforkueftirlitsins flytja erindi um málið. Ráðstefnan hefst kl. 9:30 og verður í Sjálfstæðissalnum Thorvaldsenstræti 2 á Parliament Hotel. Verð á raforku Það kostar a.m.k. þrefalt meira fyrir fjölskyldu að hita heimili sitt með rafmagni heldur en það kostar t.d. fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu með aðgang að hitaveitu. Það er því ekki að undra að það hafi í áraraðir verið baráttumál Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum að lækka verð á raforku til húshitunar. Árangur þeirrar baráttu hefði átt að vera meiri, til hagsbóta fyrir heimili og fyrirtæki á rafkyntum svæðum, ekki síst í ljósi þess að niðurgreiðslur ríkisins til húshitunar með rafmagni hafa hækkað síðustu árin. En hvers vegna hefur ekki náðst nægilegur árangur í að lækka orkureikninginn á rafkyntu svæðunum? Það á sér margar skýringar sem of langt mál er að fara yfir í stuttri grein. Raforkuverð til almennings hefur hækkað umtalsvert síðustu árin, á sama tíma og niðurgreiðslur ríkisins hafa aukist. Árin 2023–2025 hækkaði það verulega, jafnvel umfram verðbólgu. Svo virðist sem orkusalar hér á landi hafi nýtt tækifærið, við hækkun á niðurgreiðslum til húshitunar, til að hækka raforkuverðið hjá sér. Sumir orkusalarnir hafa meira að segja verið óhræddir við að tengja þetta tvennt saman, í opinberum skilaboðum til viðskiptavina sinna. Útkoman er því sú að þrátt fyrir að barátta rafkyntu sveitarfélaganna hafi skilað heimilunum auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði, þá hefur sá ávinningur að litlu leyti fært íbúunum lægri húshitunarkostnað þegar upp er staðið, sem þó var tilgangurinn. Hafa framboð og eftirspurn ekki áhrif? Önnur skýring er sú að framboð og eftirspurn eftir rafmagni hafa ekki áhrif til lækkunar á raforku til húshitunar, einungis til hækkunar. Því er haldið fram að á Íslandi sé í dag virkur orkumarkaður. Þegar á reynir stenst það hins vegar ekki skoðun. Ef staðan er tekin í dag, þegar þessi grein er skrifuð, þá er nægt framboð á raforku m.a. vegna tímabundinna aðstæðna á markaði vegna Bakka á Húsavík og bilunar á Grundartanga. Auk þess er vatnsbúskapurinn á landinu með besta móti, þannig að hægt er að framleiða eins og uppsett afl leyfir. Af hverju lækkar raforkuverð þá ekki? Þegar spurt er hvers vegna ekki sé hægt að lækka verð til neytenda við slíkar aðstæður, fást þau svör að orkusalarnir hafi keypt orku langt fram í tímann á háum verðum og einungis lítill hluti af þeirra orkukaupum sé til kominn með verslun frá mánuði til mánaðar. En þegar þær aðstæður koma upp að skortur myndast á markaði vegna ytri aðstæðna, þá hefur yfirleitt ekki liðið á löngu áður en búið er að grípa til mikilla verðhækkana. Skýringar orkusalanna eru jú að skortur sé á raforku! Sérstakt hvernig þessi orkukaup raforkusalanna virka einungis í aðra áttina þegar aðstæður og markaðir sveiflast, til hækkunar – en ekki lækkunar. Því má velta upp hvort framboð og eftirspurn skipti einfaldlega ekki máli þegar kemur að verði á raforku til heimilanna. Mun verðið aldrei fara niður fyrir ákveðið lágmark þar sem krafa eigenda um arðgreiðslur er stærri þáttur, sem vegur þyngra en verð til neytenda? Raforkumarkaðurinn skiptist þannig að um 15% af raforku sem framleidd er á Íslandi fer til almennings og minni fyrirtækja, en um 85% fer til stórkaupenda. Almenningur – heimilin og smærri fyrirtæki – eru því aðeins lítill hluti af heildarsölu raforku. Rafvæðingin Þegar við fórum af stað á sínum tíma að rafvæða Ísland var lögð mikil vinna í að koma upp virkjunum og flutningslínum til að flytja raforkuna. Allt kapp var lagt á að koma rafmagni til sem flestra landsmanna og sem víðast á landinu. Síðan var farið að virkja til að nýta orkuauðlindirnar okkar til að auka störf í landinu og þá kom stóriðjan til. Hver er tilgangurinn? Nú má spyrja; er tilgangur opinberu orkufyrirtækjanna ekki lengur sá að framleiða orku á Íslandi á sem hagstæðustum kjörum almenningi til heilla og jafnframt að nýta auðlindirnar til að afla þjóðarbúinu aukinna tekna? Er upphaflegi tilgangurinn fyrir borð borinn, íbúarnir og heimilin? Erum við horfin frá þeirri vegferð sem var og nú skiptir mestu máli að ná sem hæstum verðum fyrir raforkuna og skila sem mestum arðgreiðslum? Og það jafnvel þó það kosti íbúa á köldum svæðum 3-4 sinnum meira en þá íbúa sem njóta þess að búa við húshitun úr annarri sameiginlegri auðlind; heitu vatni? Munu íbúar rafkyntra svæða aldrei fá að njóta þess að virkjanir sem byggðar voru til að afla nægrar orku fyrir heimili og smærri fyrirtæki í landinu – og eru að fullu afskrifaðar – skili ávinningnum í formi lægri verðlagningar á raforku? Rétt eins og íbúar njóta á þeim svæðum sem voru svo lánsöm að finna heitt vatn? Framtíðarþróun Undanfarin misseri hefur eftirspurn verið margfalt meiri en framboð á rafmagni í grunnorku. Því er síðan spáð að á komandi árum muni eftirspurn eftir raforku aukast margfalt meira en hún hefur gert síðustu áratugina. Hvar standa heimilin og smærri fyrirtækin þá? Það er enn brýnna að tryggja þeim þau grunngæði sem rafmagnið er, aðgang að því og viðráðanlegt verð. Það þarf að ná samstöðu um að tryggja orku og jafna orkukostnað landsmanna óháð orkugjafa. Vilji er allt sem þarf. Á ráðstefnunni á morgun munum við m.a. ræða þessi álitaefni. Fróðlegt verður að heyra viðhorf frummælenda, sem og gesta sem fá tækifæri til að taka þátt í umræðum. Höfundar sitja í stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rafmagn Landsvirkjun Orkumál Vestmannaeyjar Snæfellsbær Múlaþing Grundarfjörður Vesturbyggð Íris Róbertsdóttir Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Sjá meira
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun