Sérkennilegur samhljómur Ingólfur Sverrisson skrifar 19. mars 2026 15:02 Þegar stýrivextir eru enn einu sinni hækkaðir og bankarnir undirbúa vaxtahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki sem eru lokuð inn í íslenska krónuhagkerfinu minnir ástandið á að hér á landi lifa tvær þjóðir sem að þessu leyti búa við gjörólíkar aðstæður. Annars vegar eru það fjöldi fyrirtækja sem færa allt sitt í evrum eða dollurum og hafa því aðgang að mun hagstæðari lánum og lægri vöxtum, tryggingum hjá erlendum fyrirtækjum og ýmsu sem léttir reksturinn svo um munar. Hins vegar fyrirtækin sem eru lokuð inni í krónuhagkerfinu og nauðug, viljug verða t.a.m. að taka á sig allar vaxtahækkanir sem sú víðtæka einokun útheimtir. Við þann hóp bætast svo skuldugir einstaklingar, einkum ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið. Þannig hefur myndast mismunun í þjóðfélaginu sem á sér engan líka í víðri veröld og er okkur ekki bara til skammar heldur líka til víðtæks tjóns fyrir stóran hluta þjóðarinnar. Verst af öllu er þó að velmeinandi fólk leggur kollhúfur við þessu ástandi og lætur sér jafnvel sæma að mæla því bót, geldur jafnvel varhug við öllum breytingum til hagsbóta fyrir þá einstaklinga og fyrirtæki sem sitja í þeirri illþefjandi súpu sem íslenska krónuhagkerfið er. Er þá stundum gripið til orðaleikja eins og fram kemur hjá mínum gömlu og góðu Samtökum iðnaðarins sem ég starfaði hjá í mörg ár. Nú er reynt að sannfæra þá félagsmenn sem sitja eftir í krónuhagkerfinu um að samhljómur innan samtakanna um grundvallaratriði í starfsumhverfinu sé eitthvað allt annað en að vera samstíga. Einu gildi um samhljóminn ef félagsmenn eru samstíga um að vinna ekki að breytingu á núverandi ástandi og þeim mikla mismun sem aðildarfyrirtækjunum er búinn hvað varðar starfsumhverfi. Hvernig fyrirtæki í svo gjörólíkri aðstöðu geta orðið samstíga í hagsmunabaráttunni er ofvaxið skilningi margra. Nema þau þeirra sem sitja í súpunni sætti sig við það og þyki bara gott að þau, ásamt unga fólkinu, eigi ein að taka á sig allar þjáningarnar sem fylgja krónunni og vaxtabyrgðinni hér innanlands! Auðvitað vita allir að fyrirtæki verða aldrei samstíga sem búa við svo gjörólíkar aðstæður; annar hópurinn með aðgang að mun lægri vöxtum og hagstæðara starfsumhverfi en hinn lokaður inni í krónuhagkerfinu. Slík afstaða er eins og að stinga höfðinu í sandinn og vona að einhver undur og stórmerki gerist til að bjarga okkur frá eigin krónuhagkerfi. Þessi þöggun hefur gengið svo langt að félagsmönnum í Samtökum atvinnulífsins hefur verið harðbannað að ræða á opinberum fundum um kosti og galla þess að ganga að fullu inn í ESB og taka upp evru sem gjaldmiðil. Slík umræða er sögð óviðeigandi og með öllu gagnslaus á meðan þeir félagsmenn sem geta nýtt sér kosti evrunnar eða dollarans brosa góðlátlega og hlæja inn í sig af ákafa. Þessi staða er auðvitað bæði kjánaleg og skaðleg fyrir íslenska hagsmuni. Því er fullkomlega tímabært taka upp þráðinn um hugsanlega aðild að ESB og upptöku evru enda þótt talsmenn íslenskra fyrirtækja standi hjáróma hjá og flæki sig í vangaveltum á mismuninum á hugtökunum samhljómi og að vera samstíga. Á slíkri vegferð er ekki raunhæft að vænta nokkurs árangurs. Þjóðinni verður áfram skipt í tvo hópa sem búa við gjörólík kjör og allri þeirri ósanngirni sem slíkri aðskilnaðarstefnu fylgir. Og þá er spurt: Er þetta hin eftirsóknarverða framtíð? Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seðlabankinn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Ingólfur Sverrisson Efnahagsmál Mest lesið Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar