Rekinn úr íranska landsliðinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. mars 2026 11:30 Sardar Azmoun birti mynd af sér með varaforseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna í síðustu viku. Yu Chun Christopher Wong/Eurasia Sport Images/Getty Images Sardar Azmoun, einn besti leikmaður íranska landsliðsins í fótbolta, er sagður hafa verið rekinn úr landsliðinu fyrir meinta óhollustu við stjórnvöld landsins.
Þó ekkert sé enn á hreinu varðandi þátttöku Íran á HM í sumar mun landsliðið sinna undirbúningi fyrir mótið með tveimur æfingaleikjum við Nígeríu og Kosta Ríka. Leikirnir munu fara fram í Tyrklandi í næstu viku. Fréttastofan Reuters hefur það hins vegar eftir írönskum fjölmiðlum að Sardar Azmoun verði ekki valinn í leikmannahóp landsliðsins í æfingaleikjunum og að líklega verði hann ekki heldur valinn í hópinn fyrir HM í sumar. Azmoun er næstmarkahæsti leikmaður í sögu íranska landsliðsins og einn vinsælasti knattspyrnumaður Íran. Á sínum ferli hefur hann spilað Zenit St. Petersburg, Bayer Leverkusen og Roma en í dag leikur hann með Shabab Al-Ahli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Azmoun birti mynd á Instagram í síðustu viku af sér og Mohammed bin Rashid Al Maktoum, varaforseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna og leiðtoga Dubai. Íran hefur herjað stríð gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir stuðning þeirra við innrás Ísraels og Bandaríkjanna inn í Íran. Myndin sem Azmoun birti á Instagram, og hefur nú verið fjarlægð, er því talin hafa fallið illa í kramið hjá klerkastjórninni.
HM 2026 í fótbolta Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjá meira