Chuck Norris er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. mars 2026 14:02 Chuck Norris átti langan feril í Hollywood og var jafnframt með svarta beltið í fjölmörgum bardagaíþróttum. Getty Bardagakappinn og leikarinn Chuck Norris er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést í gærmorgun í Havaí eftir að hafa verið lagður þar inn á spítala fyrr í vikunni.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá andláti hans en fjölskylda Norris greindi frá andlátinu með færslu á Instagram fyrr í dag. „Fjölskylda okkar er hrygg í bragði yfir því að deila fregnum af skyndilegu andláti okkar elskaða Chucks Norris í gærmorgun. Við viljum halda kringumstæðunum út af fyrir okkur en þið megið vita að hann var umkringdur fjölskyldu sinni og fór í friði,“ sagði í færslu fjölskyldunnar. Byrjaði allt saman í Suður-Kóreu Chuck Norris, fullu nafni Carlos Ray Norris, fæddist í bænum Ryan í Oklahoma 10. mars 1940. Lengst framan af æsku sinni var Norris hlédrægur og lét lítið fyrir sér fara. Hann gekk í bandaríska flugherinn og við störf í Suður-Kóreu kynntist hann bardagalistinni Tang Soo Do. Eftir að hann sneri heim úr hernum hélt hann áfram þjálfun sinni í bardagaíþróttum og opnaði sinn eigin bardagasal. Norris keppti í fjölmörgum bardagagreinum, vann fjölda titla og öðlaðist svarta beltið í karate, taekwondo, Tang Soo Do, brasilísku jiu jitsu og júdói. Norris þjálfaði fjölmarga Hollywood-leikara í undirbúningi þeirra fyrir bardagamyndir og fór síðan sjálfur út í leiklistina. Vinur Norris, kung fu-stjarnan Bruce Lee, bauð honum að leika illmennið á móti sér í kvikmyndinni The Way of the Dragon (1972). Hasarstjarna og ódauðlegt meme Næstu ár lék Norris í ýmsum bardagamyndum og fékk síðan sín fyrstu aðalhlutverk í myndunum Breaker! Breaker! (1977) og Good Guys Wear Black (1978). Eftir það varð Norris að vinsælli hasarstjörnu og lék í myndum á borð við Missing in Action (1984) og Delta Force (1986) og sem Texas-löggann Cordell Walker í CBS-þáttunum Walker, Texas Ranger á tíunda áratugnum. Chuck Norris í Way of the Dragon. Upp úr aldamótum fækkaði hlutverkum Norris en hann lék þó í stöku myndum, svo sem The Expendables 2 (2012). Þrátt fyrir að hafa dregið sig úr sviðsljósinu hefur nafn hans haldist þekkt í menningunni, ekki síst vegna ýmiss konar gríns og meme-a á netinu sem hverfast í kringum hugmyndina um að Norris sé ódrepandi afl. Norris fagnaði 86 ára afmæli fyrir tíu dögum síðan og birti myndband af því tilefni þar sem hann var að boxa á Havaí. Við færsluna skrifaði hann: „Ég eldist ekki. Ég fer upp um stig,“ og þakkaði jafnframt fyrir enn eitt árið undir beltinu. View this post on Instagram A post shared by Chuck Norris (@chucknorris) Norris lætur eftir sig fimm börn, leikarann Mike, NASCAR-ökuþórinn Eric, Dinu, og tvíburana Dakota og Danilee; þrettán barnabörn, eiginkonuna Gena O'Kelley og bróðurinn Aaron Norris. Fréttin hefur verið uppfærð.
Andlát Bíó og sjónvarp Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Chuck Norris lagður inn á spítala Hinn gallharði Chuck Norris var lagður inn á spítala eftir bráðartilvik í Havaí á dögunum. Þrátt fyrir það er bandaríski kvikmyndaleikstjórinn sagður vera í góðu skapi. 19. mars 2026 19:25 Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira
Chuck Norris lagður inn á spítala Hinn gallharði Chuck Norris var lagður inn á spítala eftir bráðartilvik í Havaí á dögunum. Þrátt fyrir það er bandaríski kvikmyndaleikstjórinn sagður vera í góðu skapi. 19. mars 2026 19:25