41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 18:46 Bræður Aron Elí og Birkir Már Sævarssynir sameina nú krafta sína hjá Aftureldingu. Afturelding Einn leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson, er genginn til liðs við Aftureldingu og mun því spila í Lengjudeildinni í fótbolta í sumar.
Þar með er ljóst að Birkir mun spila með bróður sínum, Aroni Elí, sem verið hefur lykilmaður og fyrirliði í Mosfellsbænum og leikið sex tímabil með Aftureldingu. Birkir, sem á að baki 103 A-landsleik og spilaði til að mynda á EM í Frakklandi 2016 og HM í Rússlandi 2018, er orðinn 41 árs gamall en lætur engan bilbug á sér finna. Hann kvaddi uppeldisfélag sitt Val, í annað sinn á ferlinum, haustið 2024 og flutti til Svíþjóðar en hélt áfram að spila þar og hefur svo einnig æft og spilað með KH eftir að hafa snúið aftur heim til Íslands. Á ferlinum hefur hann einnig spilað með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð en nú tekur Birkir slaginn með Aftureldingu. „Mér líst vel mjög vel á að ganga til liðs við Aftureldingu. Ég hef fylgst vel með liðinu á síðustu árum og hrifist af leikstílnum og andrúmsloftinu í kringum klúbbinn. Svo er auðvitað gamall draumur að rætast þegar ég fæ loksins tækifæri til að spila með litla bróður mínum. Þannig að ég hlakka mikið til sumarsins í Mosó,“ sagði Birkir eftir undirskrift. Koma Birkis ætti að efla enn frekar trúna á að Mosfellingar snúi aftur í Bestu deildina, eftir að hafa leikið þar í fyrsta sinn á síðustu leiktíð en á endanum þurft að sætta sig við fall um haustið með naumindum.
Lengjudeild karla Afturelding Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira