Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 28. mars 2026 16:00 Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir stefnt að því að leikskóli taki aftur til starfa í bænum í ágúst. Vísir/Bjarni Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna.
Frá því að neyðarstigi var lýst yfir í Grindavík og bærinn rýmdur vegna hættu á eldgosi í nóvember 2023 hefur hvorki leik- né grunnskóli verið starfandi í bænum. Í dag dvelja um fjögur hundruð og fimmtíu manns í bænum að jafnaði en nýlega var auglýst eftir skólastjóra yfir samræmdum leik- og grunnskóla í bænum. „Við fórum af stað með forskráningu sem var kannski fyrst og fremst til að meta raunverulega eftirspurn og kanna hvort það væri raunhæft að halda úti skólastarfi næsta haust. Tölurnar eru ekki endanlegar og verða í sjálfu sér ekki endanlegar fyrr en skóli hefst en við sjáum fyrir að það verði einhverjir tugir nemenda í leik- og grunnskóla sem búa þá hér í Grindavík næsta haust,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Foreldrara um áttatíu barna hafi lýst yfir áhuga á að nýta sér leik- eða grunnskóla bæjarins og við því þurfi bærinn að bregðast. Sex sóttu um stöðu skólastjóra og í morgun var greint frá því að Guðlaug Erlendsdóttir hafi verið ráðin í stöðuna. Hún gegndi stöðu aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Grindavíkur í sjö ár. Búið sé að taka ákvörðun um að hefja starfsemi leikskólans strax í ágúst en enn þá sé í skoðun hvort að innritað verði í grunnskólann í haust. „Við héldum foreldrafund síðastliðinn þriðjudag og þar kom fram skýr vilji foreldra um að það yrði opnað hér í grunnskóla. Þannig að við erum alveg opin fyrir því og við komum til með að vinna þetta mál áfram með nýjum skólastjóra. Þetta byggist auðvitað allt á öryggi. Við erum mjög meðvituð um það. Þannig að það þarf að fara fram ítarlegt öryggismat og við erum að vinna í því. Hér er verið að vinna hörðum höndum í að gera bæinn öruggari.“Hún Grindvíkinga tilbúna til að byggja upp bæinn aftur. „Við erum að opna tjaldstæðið og svo er úrslitakeppnin í körfunni fram undan, þannig að það er bara góð stemning hérna myndi ég segja. Svo vonumst við til þess að náttúran verði okkur hliðholl í þessum verkefnum fram undan.“
Grindavík Leikskólar Skóla- og menntamál Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira