Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. mars 2026 12:50 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, kom fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í morgun. vísir/Vilhelm Samþykki Íslendingar að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið er gert ráð fyrir að þær verði kláraðar fyrir lok kjörtímabilsins og að ráðist verði í stjórnarskrárbreytingar fyrir næstu kosningar. Utanríkisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Ráðherra segir engar viðræður hafnar.
Á nefndarfundinum var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra meðal annars spurð hvenær væri gert ráð fyrir að mælt yrði fyrir nauðsynlegum breytingum á stjórnarskrá, samþykki Íslendingar að ganga í ESB. Miðað er við að verði gert undir lok kjörtímabilsins. „Ef þjóðin segir já, að hún vilji sjá samning, vilji sjá þá kosti og þau tæki og þau tækifæri sem felast í því að eiga þessi samtöl með öllu því sem þeim fylgir, eins og að tryggja yfirráð yfir sjávarauðlindinni, tryggja undirstöður íslensks samfélags en um leið taka virkan þátt með því að eiga sæti við borðið með öðrum Evrópuþjóðum, að þá erum við að sjá að við förum í skýrslugjöf. Síðan verður farið af stað í aðildarviðræður, það verði sent til Evrópusambandsins að við óskum þess að klára eða halda áfram með þær aðildarviðræður sem hafa byrjað og þá er líka um leið hægt að fara í vinnu við stjórnarskrána. Það tekur tíma,“ sagði Þorgerður Katrín á nefndarfundi. Til stendur að leggja skýrslu um samningsmarkmið í viðræðunum fyrir Alþingi.vísir/Getty Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort halda eigi viðræðum áfram á að fara fram þann 29. ágúst næstkomandi. Verði samþykkt að ganga til viðræðna stendur til að staðfesta framhald þeirra á formlegri ríkjaráðstefnu milli Íslands og aðildarríkja ESB. Skýrslugjöfin sem Þorgerður vísaði til felst í því að skýrsla um uppfærð samningsmarkmið verður unnin og lögð fyrir þingið, samkvæmt því sem fram kom á fundinum. Vinna við slíka skýrslu yrði hafin í samvinnu við hagaðila eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Samningahópur settur á fót Takist samningar við Evrópusambandið verður boðað aftur til þjóðaratkvæðagreiðslu. Samþykki Íslendingar að ganga í sambandið þarf að gera breytingar á stjórnarskrá og gert er ráð fyrir að samningahópur um lagaleg málefni verði settur á fót. Þá verði kallað til samtals allra flokka um stjórnarskrárbreytingar á breiðari grunni. Kjörtímabilið klárast eftir ríflega tvö og hálFt ár, eða árið 2028. Allt ferlið með þjóðaratkvæðagreiðslum, aðildarviðræðum og vinnu við breytingar á stjórnarskrá þyrfti því að klára á þeim tíma. Tvö þing þurfa að samþykkja stjórnarskrárbreytingar og næsta þing eftir kosningar þyrfti því að samþykkja breytingarnar á ný. Þorgerður Katrín ítrekaði á fundinum að engar viðræður væru hafnar. „Engar aðildarviðræður eru farnar af stað, það er rangt, það er rugl og það er dómadagsdella. Engin samtöl hafa átt sér stað varðandi einhverja fiskveiðikommisera. Bara ekki,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira