Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 13:27 Samningurinn var undirritaður við athöfn utandyra, í trjálundinum við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Aðsend Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Í tilkynningu kemur fram að Hjallastefnan reki nú tvo leikskóla á Vífilsstöðum, annars vegar Hnoðraholt og hins vegar Litlu-Ása. Litlu-Ásar fá í breytingunum nýtt nafn og mun framvegis starfa undir heitinu Vífilsholt. Hjallastefnan rekur auk þess í Garðabæ Barnaskóla Hjallastefnunnar. Samkomulagið gerir ráð fyrir áframhaldandi starfsemi þessara skóla á svæðinu og að hún geti vaxið frekar. Samkvæmt tilkynningu felur samningurinn annars vegar í sér að við áframhaldandi skipulagsvinnu á Vífilsstöðum mun Garðabær gæta þess að nægt rými verði tryggt fyrir starfsemi Hjallastefnunnar á svæðinu. Hins vegar er kveðið á um að Garðabær og Hjallastefnan muni í sameiningu undirbúa stækkun Vífilsholts. Framkvæmdum lýkur 2027 Garðabær mun annast framkvæmdir við stækkunina sem áætlað er að ljúki í ágúst 2027. Með framkvæmdunum verður leikskólaplássum fjölgað og er gert ráð fyrir að Vífilsholt verði að minnsta kosti 80 barna leikskóli að þeim loknum en þar eru tæplega 50 börn í dag. „Báðir aðilar eru sammála um mikilvægi samstarfs um rekstur skólastarfs á svæðinu og því er lykilatriði að tryggja rými til framtíðar,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar í tilkynningu. „Með þessum samningi erum við bæði að skjóta sterkari rótum undir skólastarf á svæðinu og um leið að skapa aukið rými fyrir börn sem munu flytjast á ný íbúðasvæði í nágrenninu. Samstarfið við Hjallastefnuna hér í Garðabæ í gegnum árin hefur verið farsælt og til fyrirmyndar. Það er ljóslifandi dæmi um það hvernig sveitarfélög og sjálfstætt starfandi aðilar geta átt í blómlegu og uppbyggilegu samstarfi sem skilar sér til íbúa í auknum gæðum, fjölbreytni og hagkvæmni.“ Í fréttinni kom fyrst fram að sameina ætti leikskólana tvo undir nafni Vífilsholts en það er ekki rétt. Litlu-Ásar fá nýtt nafn. Lagfært klukkan 14:35 þann 25.3.2026.
Leikskólar Garðabær Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira