Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Freyja Þórisdóttir skrifar 25. mars 2026 20:00 Góa og Omnom hafa tekið höndum saman í von um að geta glatt starfsmenn Landspítalans um páskana. Vísir/Vilhelm Ragnar Freyr Ingvarsson, jafnan þekktur sem læknirinn í eldhúsinu, segist brosa allan hringinn í kjölfar símtals þar sem hann ræddi við „ljúfa fólkið í Góu og Omnom“ um að þau væru tilbúin að leysa stóra Páskaeggjamálið sem fréttir hafa borist af síðastliðna daga.
Í vikunni kom í ljós að á Landspítalanum hafi verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg. Ragnari þykir þetta léleg forgangsröðun og segir að það ætti að sýna fólkinu í framlínunni þakklætisvott, þetta segir hann í samtali við fréttastofu Vísis. „Ég var búinn að tjá mig um það á Facebook að þykja svekkjandi að heyra af því að ráðherrar landsins fengju gefins risastóra páskaeggjaleit en starfsfólkið í framlínunni ekki neitt,“ segir Ragnar og vísar til páskaeggjaleitar sem samkvæmt umfjöllun Viðskiptablaðsins var haldin í heilbrigðisráðuneytinu. Hann hafi svo verið uppi í hesthúsum í kvöld þegar honum barst óvænt símtal frá fólki á vegum sælgætisgerðarinnar Góu sem og súkkulaðigerðarinnar Omnom. „Ég fékk bara símtal frá Góu um að þau geri fimm þúsund súkkulaðiegg og að Omnom geri önnur þúsund súkkulaðiegg. Þau ætla að framleiða þau sérstaklega fyrir starfsfólk spítalans af því að lagerinn er tómur og framleiðslunni var hætt þetta árið,“ segir Ragnar. Hann bætir því við að þau hafi ákveðið að Omnom-eggin yrðu gefin því starfsfólki Landspítalans sem standa vaktina yfir páskana og svo verði Góu-eggjunum dreift á hina. Hann segir einnig frá því að ræsa þurfi allar framleiðsluvélarnar aftur svo verkið takist en sjálfur stefnir hann á að aðstoða við framleiðsluna. Í færslu sem hann birti á Facebook segir hann „ég á stefnumót snemma í fyrramálið (ef veður leyfir) og reyni að leggja mitt af mörkum“.
Páskar Landspítalinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sælgæti Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira