Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn Smári Jökull Jónsson skrifar 27. mars 2026 10:10 Verið var að undirbúa síðustu eggin fyrir þessa páska en framleiðsla páskaeggja hófst um áramótin. Vísir/Lýður Valberg Páskaeggjavertíðin er í hámarki um þessar mundir en alls eru framleidd á aðra milljón súkkulaðieggja fyrir súkkulaðiþyrsta landsmenn. Í verksmiðju Góu var framleiðsla á páskaeggjum fyrir starfsfólk Landspítalans í fullum gangi.
Góa framleiðir hátt í hálfa milljón eggja fyrir páskana og höfðu lokið framleiðslu þegar ákveðið var að ræsa vélarnar á nýju til að framleiða egg fyrir starfsfólk Landspítalans. Alls þurfti að bæta við sex þúsund páskaeggjum. Greint var frá því í vikunni að vegna niðurskurðar fengju starfsmenn Landspítalans engin páskaegg gefins þetta árið. Forráðamenn Góu ákváðu að grípa í taumana og gefa starfsfólkinu egg og í gær mætti Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður læknafélags Reykjavíkur, og aðstoðaði við framleiðsluna. „Okkur finnst náttúrulega ekki nógu gott að það sé ekki verið að gefa fólki páskaegg, framlínufólkinu á spítalanum. Það er fólkið sem er að vinna vinnuna og hugsa um okkur þannig að við verðum að gefa þeim páskaeggin í ár,“ sagði Helgi Már Gíslason, framkvæmdastjóri Góu og barnabarn hins eina sanna Helga í Góu. Hann segir skemmtilega stemmningu skapast hjá fyrirtækinu þegar framleiðsla eggjana fer á fullt um áramótin. Síðustu eggin fara í verslanir á morgun og þá tekur við skemmtileg hefð starfsmanna. „Við stöndum vaktina til miðnættis í kvöld að steypa þessi egg og svo eftir hádegið á morgun þá fær allt starfsfólkið að koma og búa til sín eigin páskaegg og skreyta og koma með nýjar hugmyndir fyrir næsta ár,“ sagði Helgi í viðtali í gær. Helgi Már er framkvæmdastjóri Góu.Vísir/Lýður Valberg Starfsmenn voru í óða önn að koma sælgæti fyrir í síðustu eggjunum og skreyta. „Þetta er fyrir spítalann, við erum að byrja núna og ég held að við klárum í dag,“ segir Choosri sem unnið hefur hjá Góu í 25 ár. Hún er ekki í neinum vafa hvert sé hennar uppáhaldsegg. „Ég vil fá stórt egg,“ segir hún hlæjandi. „Fyrir strákinn minn,“ bætir hún svo við. Choosri hefur unnið í 25 ár hjá Góu og er hér á fullu að koma sælgæti fyrir inni í páskaeggjunum sem fara til starfsfólks Landspítalans.Vísir/Lýður Valberg Rúsínan í pylsuendanum eru svo páskaungarnir sem þurfa að fara á sinn stað. Fréttamaður fékk að spreyta sig í skreytingum eggjanna eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan en ólíklegt verður þó að teljast að honum verði boðin vinna við slíkt á næstunni.
Páskar Landspítalinn Sælgæti Tengdar fréttir Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg. 25. mars 2026 10:51 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg. 25. mars 2026 10:51