Ráðherra fari með rangt mál Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. mars 2026 13:04 Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir fyrirætlanirnar ríkisstjórnarinnar um fækkun stöðugilda hjá ríkinu, vonbrigði. Það sé ekki rétt að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað heldur þvert á móti þeim hafi hlutfallslega fækkað. Vísir Formaður BSRB segir fjármálaráðherra tala gegn betri vitund þegar hann heldur því fram að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað hraðar en starfsfólki á almennum vinnumarkaði síðustu ár. Þeim hafi þvert á móti fækkað hlutfallslega. Markmið um fækkun stöðugilda næstu ár sé vonbrigði og byggi ekki á faglegri stefnumótun.
Fjármálaráðherra kynnti fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2030 í gær. Meginstefið þar er að ná fram hallalausum fjárlögum og lækka skuldir. Fram kom í kynningu Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í gær að liður í því væri að fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent á tímabilinu. Í kynningunni kom fram að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað um nítján prósent frá árinu 2019. Úr kynningu fjármálaráðherra um fjármálaáætlun. Vísir „Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað bæði hraðar en starfsfólki á almennum vinnumarkaði og þjóðinni á undanförnum árum. Það er auðvitað ekki sjálfbært til lengri tíma,“ sagði Daði Már Kristófersson í gær eftir kynninguna. Ráðherra fari með rangt mál Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir fyrirætlanirnar vonbrigði. „Þegar málflutningurinn snýst um að fækka eigi ríkisstarfsmönnum bara til þess að fækka þeim, þá er um pólitískar kreddur að ræða en ekki faglega stefnumótun stjórnvalda. Því er haldið fram að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað undanfarin ár. Þetta er söngur sem sérhagsmunaöfl hafa sungið lengi. Bæði fjármálaráðuneytið og BSRB hafa hins vegar ítrekað bent á að ríkisstarfsmönnu hefur ekki fjölgað sem hlutfall af fólki á vinnumarkaði,“ segir Sonja. Sonja segir að opinberum starfsmönnum hafi þvert ofan í það sem ráðherrann heldur fram fækkað hlutfallslega frá árinu 2019. Við erum með það alveg skýrt að ef við horfum bara á tímapunktinn frá 2019 til dagsins í dag þá hefur ríkisstarfsmönnum fækkað hlutfallslega,“ segir Sonja og bætir við að fjármálaráðherra hafi fengið þær upplýsingar til sín um miðjan mars. Samantekt á fjölda ríkisstarfsmanna á vinnumarkaði frá BSRB.Vísir Sonja veltir fyrir sér hvort ráðherra hafi talað gegn betri vitund í gær . „Þegar ríkisstjórnin hefur sett það á oddinn að auðvelda uppsagnir á ríkisstarfsmönnum vakna spurningar um hvort það sé verið að setja fram tölur um fjölgun starfsmanna gegn betri vitund,“ segir Sonja.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálamarkaðir Fjármálafyrirtæki Alþingi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira