Íranir búa sig undir árásir landherliðs Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2026 14:41 Fjölmennt landgönguherlið Bandaríkjahers var sent í átt að Íran í vikunni. AP Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. „
Svo lengi sem Bandaríkjamenn leitast eftir uppgjöf Íran látum við ekki niðurlægja okkur,“ sagði Mohammad Baqer Qalibaf forseti þingsins er hann ávarpaði írönsku þjóðina í dag. Hann sagði íranskar hersveitir bíða þess að bandarískir hermenn komi inn í landið svo þær geti „látið byssuskotum rigna yfir þá“. Bandaríkin ekki staðfest neitt Mörg þúsund landgönguliðar héldu í átt að Mið-Austurlöndum um borð í árásarskipum á undanförnum dögum. Washington Post hafði eftir heimildarmönnum í vikunni að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna væri að undirbúa margra vikna aðgerðir á jörðu niðri í Íran, þar með taldar árásir fótgönguliða. Óvíst væri þó hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti féllist á að senda fótgönguliða inn í landið. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur áður sagt Bandaríkin geta náð markmiðum sínum án þess að senda landgönguliða inn í Íran en til að auka sveigjanleika hafi verið ákveðið að senda herlið á svæðið. Enn skotið á víxl Utanríkisráðherrar Pakistan, Sádi-Arabíu, Tyrklands og Egyptalands funda í Islamabad í Pakistan í dag í von um að finna leiðir til að koma böndum á átökin sem staðið hafa yfir í meira en mánuð. Engin lausn virðist þó í sjónmáli eins og staðan er núna. Í umfjöllun Reuters segir að Íranir og Ísraelar hafi haldið áfram árásum á víxl í dag. Hútar í Jemen, sem eru hliðhollir Íransstjórn, blönduðu sér í átökin í gær í fyrsta sinn á undanförnum mánuði þegar þeir skutu eldflaugum og drónum að suðurhluta Ísrael. Þá felldi Ísraelsher þrjá blaðamenn í Líbanon og gaf þær skýringar að einn þeirra væri hryðjuverkamaður með tengsl við Hezbollah-samtökin, sem einnig eru hliðholl Íransstjórn.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Ísrael Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira