Innlent

Hellis­heiði opin en Þrengsli enn lokuð

Samúel Karl Ólason skrifar
Hellisheiði og Þrengslum hefur verið lokað vegna slysa og fastra bíla.
Hellisheiði og Þrengslum hefur verið lokað vegna slysa og fastra bíla. Vísir/vilhelm

Hellisheiði hefur verið opnuð á nýjan leik og en Þrengsli eru enn lokuð. Á vef Vegagerðarinnar segir að krapi sé víða á vegum þar og snjóþekja einnig. Þungfært er á Mosfellsheiði.

Uppfært 10:30 - Búið er að opna fyrir umferð til yfir Hellisheiði. Þrengsli eru enn lokuð.

Hellisheiði var lokað í báðar áttir í morgun. Henni er lokað í austurátt vegna umferðaróhapps og í vesturátt vegna bíla sem sitja fastir á heiðinni.

Fólki sem reyndi að keyra í vesturátt yfir heiðina í morgun var snúið við. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, var ein þeirra sem var snúið við. Í tilkynningu frá flokki hennar kemur fram að blaðamannafundi sem Guðrún ætlaði að stýra um efnahagstillögur hennar klukkan tíu hefði verið frestað vegna þess að formaðurinn kæmist ekki yfir Hellisheiði í tæka tíð.

Þá var Þrengslum lokað vegna bíls sem þverar veginn.

Hægt er að fylgjast með umferðinni og færð á vegum hér á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×