Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar 3. apríl 2026 12:01 Hefur þú einhvern tímann átt samleið með persónu í nauð og vanda þar sem öll von virtist slokknuð? Svo gerðist eitthvað sem varð til þess að vonarneistinn kviknaði. Þú fannst muninn, sást ljós vakna í augum en vissir í raun ekki hvað olli. Samt var allt breytt. Starf Píeta samtakanna er um þetta. Það mikilvægasta í lífinu, þættirnir sem úrslitum ráða verða sjaldnast mældir eða skilgreindir. Þráin sem tekur að bylta sér með hækkandi sól. - Getur einhver vigtað hana? Er til mælieining yfir feginleikann sem vaknar í taugakerfi við farfuglasöng að vori? Eða þegar unglingarnir í hverfinu hnappa sig saman í döggvotri kvöldblíðu? Hvernig mætti skilgreina sólsetur, mjúka mosaþembu, þánandi skafl í gili, andardrátt sofandi barns, lækjarnið, jarm í fjarska, ilm af mold? Starf Píeta samtakanna er um þetta. Vonina sem bærist í brjóstinu þegar við skynjum nánd og samhengi. Þess vegna virka þessi samtök. Hér sameinast fólk sem er ekki hrætt við að vera hrætt né miður sín að vera miður sín andspænis sjálfsskaða og sjálfsvígsvanda því það kann skil á voninni. Það gengur að henni vísri og miðlar henni hispurslaust og mildilega eins og þegar páskaliljurnar teygja sig upp úr moldinni líkt og ekkert sé sjálfsagðara en sigur lífsins. Til er listaverk sem í vestrænni samvitund tjáir getu mannsandans til að hopa ekki af hólmi þegar vonin virðist hafa slokknað. Við þekkjum þetta verk þegar við sjáum það; höggmynd Michelangelo hvar María móðir Jesú heldur honum látnum í fangi sér. Ásjóna hennar er stillt, andvana líkaminn liggur á hægri armi en vinstri hönd er útrétt líkt og í spurn. Færri vita þó að þetta höggverk ber nafnið Pieta en af því tóku Píeta samtökin nafn sitt þegar þau voru stofnuð á Írlandi fyrir tuttugu árum. Höggmyndin sem um ræðir.Aðsend Í fimm hundruð ár hefur höggmynd Michelangelo tjáð sárasta harm en jafnframt lýst hvernig mannleg reisn ber voninni vitni. Í fimm hundruð ár hefur þessi útrétta móðurhönd borið fram kröfu um merkingu, ákall um mannlega samstöðu. Píeta er um þetta. Samstaða um von. Hjálparsími Píeta, 552-2218, er opinn allan sólahringinn, alla daga ársins. Í starfi sínu styðst Píeta á Íslandi við gagnreyndar aðferðir í allri meðferð, reynt fagfólk leiðir hópastarf og fræðslu. Við störfum í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Reyðarfirði. Á liðnu ári veittu samtökin um 3000 viðtöl, héldu úti margvíslegu hópastarfi, stóðu fyrir fjölbreyttum viðburðum og fræðslu vítt um land. 85% af allri starfsemi er kostuð með gjafafé og stór hópur sjálfboðaliða er að verki jafnan þegar eitthvað er í gangi. Glæsilegt dæmi um frumkvæði og þátttöku almennings er hinn árlegi viðburður Hlaupið fyrir Píeta sem nú fer fram sjötta árið í röð þann 11. apríl. Þar munu mörg hjörtu slá örar í þágu samtakanna því á áttunda hundrað hafa þegar skráð sig til leiks um land allt. Nú fagnar Píeta á Íslandi tíu ára afmæli sínu. Frá upphafi var markið sett á það að þjóðarsálin ætti þessi samtök og samfélagið bæri þau við hjarta sér svo að engin fjölskylda þyrfti að vera ein í angist sjálfsskaðans eða myrkri sjálfsvígsvandans. Í dag líður okkur eins og sú ósk hafi ræst. Höfundur er prestur og Píetafélagi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Bjarni Karlsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Sjá meira