Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Freyja Þórisdóttir skrifar 3. apríl 2026 13:18 Áætlað er að endurnýjunin taki rúmar sjö vikur. Vísir/Jóhann Hvalfjarðargöngin verða lokuð sex daga vikunnar frá klukkan hálf tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana í rúmar sjö vikur. Lokunin hefst næsta þriðjudag, 7. apríl, en hún er vegna þess að það á að endurnýja lýsinguna í göngunum.
Þetta segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Guðmundur Páll Bergþórsson býr ásamt eiginkonu sinni á Akranesi en þau keyra bæði tvö mjög reglulega í gegnum göngin. Hann starfar sem vörubílstjóri og hún sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum. „Ég sá bara frétt á mbl.is 1. apríl um lokunina og hélt þá að þetta væri aprílgabb en ég hringdi beint í Vegagerðina og þau sögðu mér að svo væri ekki,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi en hann er undrandi á því að lokunin hafi ekki verið tilkynnt miklu fyrr. „Það veit enginn hérna af þessu, ég hringdi í þau hjá Akraneskaupstað og þar voru allir jafn hissa og ég,“ segir Guðmundur og bætir því við að þetta hafi einnig komið flatt upp á vinkonu hans sem situr í bæjarstjórn á Akranesi. Ætlast til að hann sé mættur þegar göngin eru enn lokuð Guðmundur segist vanalega vera á vöktum sem hefjist um sjö en í aprílmánuði sé ætlast til þess að hann mæti aðeins fyrr. „Vanalega mæti ég í bæinn og fer í ræktina um sex vegna þess að það eru engar ræktir opnar svo snemma á skaganum og ég mæti sjö. En í aprílmánuði er ég að leysa af og þá er ætlast til þess að ég sé mættur klukkan sex eða hálf sjö,“ segir Guðmundur. Guðmundur Páll Bergþórsson segist ekki viss um hvernig hann né eiginkona hans muni ráðstafa vinnu í apríl. Þegar kona Guðmunds á að vera á næturvakt er hún yfirleitt mætt í vinnuna klukkan ellefu en þar sem lokanirnar eru frá hálf tíu á kvöldin þyrfti hún að leggja talsvert fyrr af stað en vanalega og vera mætt snemma. „Af hverju er ekki hægt að bjóða upp á fylgdarakstur í gegnum göngin? Það er vanalega svona tuttugu mínútna bið og svo hleypt í gegn þegar þau eru þrifin til dæmis,“ segir Guðmundur. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar verður hjáleið um Hvalfjörð. Það tekur um klukkutíma að keyra úr bænum og á Akranes ef keyrt er um Hvalfjörð. „Í svona slæmu veðri eins og hefur verið undanfarið myndi ég varla treysta konunni minni til að keyra allan Hvalfjörðinn, hvað þá eftir næturvakt,“ segir Guðmundur.
Hvalfjarðarsveit Hvalfjarðargöng Akranes Jarðgöng á Íslandi Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira