Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Lovísa Arnardóttir skrifar 4. apríl 2026 11:51 Það viðrar vel til útivistar en fólk er hvatt til að kanna aðstæður vel áður en lagt er af stað. Vísir/Vilhelm Snjóflóðavakt Veðurstofunnar mælir gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni og að göngufólk á höfuðborgarsvæðinu hugi vel að leiðarvali. Í tilkynningu frá snjóflóðavaktinni kemur fram að snjó hafi bætt við víða á landinu í gær og að léleg binding sé við eldri snjó. Víða séu veikleikar í kringum höfuðborgarsvæðið. „
Náttúruleg snjóflóð hafa fallið víða á landinu sem staðfestir veikleika í snjóþekjunni en einnig hafa orðið nokkur snjóflóð af mannavöldum en engin slys. Einnig má búast við að spýjur falli þegar sól fer að skína á brekkur,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. Kanni aðstæður vel Þar hvetur snjóflóðavakt fólk á ferð í fjalllendi til að kanna vel snjóflóðaaðstæður áður en haldið sé af stað. „Hægt er að nýta sér hallakort Veðurstofunnar fyrir leiðarval og gefin er út snjóflóðaspá fyrir ákveðin svæði daglega á vef Veðurstofunnar. Hafa skal þó í huga að spárnar gefa almenna mynd af spásvæðunum en gefa ekki upplýsingar um aðstæður í einstaka brekkum,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að vel viðri til útivistar og að spár geri ráð fyrir austlægum áttum (3-10 m/s) og að mestu úrkomulaust en snjókoma á köflum á norðaustanverðu landinu og einhver él meðfram suðurströndinni. Hiti í dag er um eða undir frostmarki. Á morgun, páskadag, sé útlit fyrir norðaustan 8-13 m/s með éljum norðan og austanlands en að mestu hægari vindur og þurrt um landið suðvestanvert og þar má jafnvel búast við að sólin láti sjá sig á köflum.
Veður Færð á vegum Reykjavík Esjan Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira