Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Birgir Olgeirsson skrifar 8. apríl 2026 12:07 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, rýnir í nýjustu kannanir. Vísir/Arnar Nýjustu kannanir benda til þess að þeir sem vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið standi frammi fyrir erfiðu verkefni. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir þó ekki hægt að tengja það beint við vaxandi óánægju með ríkisstjórnina.
Í nýrri Gallup-könnun, sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið, segjast 47 prósent andvíg aðild Íslands að Evrópusambandinu en 40 prósent hlynnt. Þrettán prósent taka ekki afstöðu. Af þeim sem taka afstöðu eru því 54 prósent andvíg og 46 prósent hlynnt. Þetta er mesta andstaða sem mælst hefur í könnunum Gallup frá árinu 2010. „Mælingin með Evrópusambandið sýnir auðvitað að þetta eru mál sem klýfur þjóðina alveg í tvennt,“ segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur. Hann bendir á að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla snúist ekki um aðildina sjálfa heldur hvort halda eigi áfram viðræðum við sambandið. Áður hefur verið greint frá annarri könnun þar sem 58 prósent sögðust hlynnt því að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram, en 30 prósent andvíg henni. „En þetta bendir hins vegar sannarlega til þess að verði samþykkt að halda áfram aðildarviðræðum, þá er á brattann að sækja fyrir aðildarsinna í kjölfarið,“ segir Eiríkur. Í ársfjórðungskönnun Maskínu kemur svo fram að í fyrsta sinn frá því ríkisstjórnin var mynduð eftir kosningarnar í nóvember 2024 mælast fleiri óánægðir en ánægðir með störf hennar. Þar segjast 39 prósent óánægð með ríkisstjórnina en 36 prósent ánægð. Eiríkur segir ekki rétt að lesa þessar niðurstöður sem eina og sömu þróun. „Í sjálfu sér er ekki beint samhengi þarna á milli. Maður átti auðvitað von á því fyrir allnokkru að óánægja með ríkisstjórnina myndi aukast. Það er svona eðli máls samkvæmt í nútímanum hvað varðar stjórnarsetu að hún kostar ríkisstjórnir í fylgi. Það hefur reyndar gerst mun seinna með þessa ríkisstjórn heldur en þær fyrri,“ segir hann. Að hans mati getur minnkandi fylgi engu að síður reynt á stjórnarsamstarfið, sérstaklega ef bakslagið lendir misþungt á flokkunum. „Flokkur fólksins hefur misst miklu meira fylgi heldur en hinir tveir og Viðreisn meira heldur en Samfylkingin líka. Þannig að allt þetta skiptir máli upp á samstarfið að gera. Hins vegar er ekki að sjá neinn bilbug á forystufólkinu hvað varðar samstarfið og það segir nú kannski meiri sögu,“ segir Eiríkur Bergmann.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Skoðanakannanir Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira