Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. apríl 2026 20:33 Unnur segir ljósmæður leggja áherslu á að konur hlusti á eigin líkama. Vísir/Sigurjón Ljósmóðir segir fjölda íslenskra kvenna sem fæði barn liggjandi á bakinu koma á óvart. Stellingin henti læknum frekar en konum og eigi vinsældir sínar að rekja til sjónvarpsþátta og kvikmynda.
Konur að fæða börn á bakinu...fyrir karlmenn - er fyrirsögn á grein á Vísi sem vakið hefur mikla athygli og er unnin upp úr umfjöllun breska ríkisútvarpsins þar sem segir að konum hafi aldrei verið ætlað að fæða börn á bakinu, það hafi einungis orðið að viðtekinni venju undanfarin 300 til 400 ár, og er það rakið til franska læknisins Francois Mauriceau sem þótti þægilegra að sinna liggjandi konum við barnsburð. Unnur Berglind Friðriksdóttir formaður Félags ljósmæðra segir ekkert í umfjöllun BBC koma sér á óvart. „Ef maður skoðar gamlar heimildir eru konur yfirleitt uppistandandi eða á hnjánum eða í svokallaðri „squatting stöðu.“ Þegar læknisfræðin tók yfir fæðingarnar þá breyttist þetta svoldið og varð það sem hentaði læknunum betur.“ Áttatíu prósent fæði á bakinu Í dag fæði um áttatíu prósent kvenna á Íslandi börn hálf sitjandi eða hálf liggjandi á bakinu. „Sem eru mjög háar tölur og ég er ekkert viss um að þetta sé það sem konur vilja sjálfar, þannig ég held líka að þetta sé þannig að þær leiti í þessa stellingu því þetta er fyrirmyndin, ósjálfrátt ferðu í hálf sitjandi stöðu af því það er eina fyrirmyndin sem þú sérð í öllum bíómyndum, öllum þáttum, ef þú sérð konu í fæðingu þá er hún alltaf hálf sitjandi.“ Unnur tekur fram að þessar tölur séu þó ekki áhyggjuefni og að það sé ekki endilega öruggara að fæða barn í öðrum stellingum. Ljósmæður hvetji konur til að hlusta á líkama sinn og vera í þeirri stellingu sem henti þeim best. „Kannski hentar þeim best í fyrstu fæðingu að vera í standandi stöðu og svo bara í næstu er ekkert sem kemur til greina en að liggja á hægri hliðinni. Ég held það fari eftir því hvernig kollurinn er að koma og hvernig barnið er að koma niður í grindina hjá konunni hvaða stelling hentar henni best en konur verða númer eitt tvö og þrjú að hlusta á eigin líkama.“
Börn og uppeldi Heilsa Heilbrigðismál Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent „Ég elska Obbu“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Sjá meira