„Tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 10. apríl 2026 21:57 Gylfi Þór Sigurðsson í baráttunni í kvöld. Anton Brink/Vísir Íslandsmeistarar Víkinga opnuðu bestu deildina á því að gera 1-1 jafntefli við Breiðablik á heimavelli í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson ræddi við Val Pál Eiríksson eftir leik og var ekki alveg sannfærður um að þetta væri mögulega sanngjörn niðurstaða. „
Sem leikmaður Víkings þá fannst mér við vera með yfirhöndina mest allan leikinn“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Víkings. „Þeir skoruðu örugglega bara í annað skiptið sem að þeir fengu boltann í fyrri hálfleik“ „Kannski ef þú varst að horfa á leikinn var þetta sanngjarnt jafntefli. Við vorum kannski meira með boltann en við vorum ekkert að skapa okkur frábær færi en kannski svona nálægt því í lokin að stela þessu en sem leikmaður Víkings þá var svekkjandi að ná ekki að vinna leikinn“ Breiðablik spilaði flottan varnarleik gegn Víkingum í kvöld og fengu Víkingar ekki opið marktækifæri fyrr en í seinni hálfleik. „Þetta var kannski svona svolítið fyrsti leikur á tímabilinu og mikil barátta, mikið af mistökum og kannski vantaði smá gæði, hraða á sendingum og þess háttar en erfitt að dæma þetta svona strax eftir leikinn“ „Ekki frábær leikur hjá okkur en gott að koma til baka og ná að jafna þetta“ Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark Víkinga í kvöld en það var af ódýrari gerðinni eftir herfileg mistök hjá Breiðablik. „Ég bjóst við boltanum, ekki það að ég hafi búist við einhverjum mistökum en strax byrjar maður bara að hugsa ef boltinn kemur til manns þá verð ég að vera tilbúin“ „Það var fínt að heilinn byrjaði strax að hugsa strax áður en að hann var búin að sparka strax og ég tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera og það var gott að ná að skora á þessum tímapunkti í leiknum og gaf okkur smá trú um að við gætum stolið þessu í lokin“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Fleiri fréttir FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Sjá meira