Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar 15. apríl 2026 13:18 Talan ræður – ekki þörfin Hversu mörg börn eiga að vera í bekk? Í íslenskum lögum og eldri viðmiðum, sem eiga rætur að rekja til grunnskólalaga frá 1974, var miðað við að nemandafjöldi í bekk væri um 14-16 fyrstu tvö árin og færi síðar upp í 18-20. Þessi viðmið voru sett fram í allt öðrum veruleika, í allt öðru skólakerfi. Samt sem áður lifa þau áfram í hugsun kerfisins. Í Reykjavík árið 2026 er veruleikinn sá að bekkir fara víða vel yfir þessi mörk, oft upp í 25-27 nemendur, án þess að samsetning hópsins hafi raunveruleg áhrif á skipulagið. Skilaboðin sem felast í þessu eru skýr: Talan stendur – börnin eiga að laga sig að henni. Auknar kröfur – óbreyttar forsendur Á síðustu áratugum hafa kröfur til skólastarfs aukist verulega. Í dag er ætlast til þess að kennarar sinni einstaklingsmiðaðri kennslu, mæti ólíkum þörfum nemenda og tryggi að hvert barn fái nám við hæfi. Þetta eru eðlilegar og mikilvægar kröfur. En þær eru settar fram án þess að grunnforsendur fylgi með. Nemendahópurinn hefur breyst. Fleiri nemendur þurfa stuðning og sífellt fleiri eru með annað móðurmál en íslensku. Í sumum skólum er það orðinn verulegur hluti nemenda. Þrátt fyrir það stendur ramminn nánast óhreyfður. Einn rammi – sífellt flóknari veruleiki Í dag virðist engu máli skipta hvernig bekkurinn er samsettur. Það getur verið: hópur þar sem margir eru að læra íslensku, hópur þar sem margir þurfa aukinn stuðning, eða hvort tveggja í senn. Heildartalan er samt sú sama. Þetta þýðir að sami kennari á að mæta sífellt flóknari vanda, án þess að rammarnir breytist. Falleg orð – óbreyttur veruleiki Í umræðu um skólamál er gjarnan lögð áhersla á að mæta breyttum þörfum samfélagsins, taka mið af ólíkum aðstæðum nemenda og þróa skólakerfið í takt við samtímann. Þetta eru mikilvæg og réttmæt markmið. En þegar horft er til grunnskipulagsins blasir önnur mynd við. Því þrátt fyrir þessa orðræðu stendur eitt að mestu óbreytt: fjöldi nemenda í bekk og sá rammi sem kennarar starfa innan. Það vekur spurningar um hvort viljinn til breytinga nái í raun inn í kjarnastarfsemi skólanna, eða hvort hann stöðvist við orðin ein. Það er erfitt að tala um sveigjanlegt og nútímalegt skólakerfi þegar farið er fram úr viðmiðum frá 1974 án þess að taka þau til raunverulegrar endurskoðunar. Raunveruleikinn í Reykjavík Í umræðu um skólamál er gjarnan talað um framsækni, sveigjanleika og aðlögun að breyttum aðstæðum. Við flöggum fallegum fánum, setjum fram metnaðarfullar stefnur og bendum á viðurkenningar og áfangasigra. En á meðan stendur veruleikinn inni í kennslustofunni kyrr. Það er kominn tími til að hætta fegra stöðuna, staðan er ekki góð. Í mörgum skólum í Reykjavík er hópurinn orðinn of stór, samsetning hans flókin og kröfurnar sífellt meiri – án þess að raunhæf aðgerðaáætlun hafi fylgt í kjölfarið. Við getum haldið áfram að skreyta yfirborðið með fallegum slagorðum – en orð ein og sér breyta engu inni í kennslustofunni. Við getum ekki sáð niður arfa og ætlast til þess að upp komi fallegar rósir – sama hversu fallegt blómabeðið er. Kerfi sem horfir fram hjá eigin veikleikum og kýs að fegra myndina í stað þess að laga hana mun halda áfram að skila sömu niðurstöðu. Og sú niðurstaða er ekki sú sem við segjumst vilja. Forsendur verða að fylgja kröfum Ef við ætlum að taka skólamál alvarlega verðum við að byrja á forsendunum. Það þýðir að: fjöldi nemenda í bekk taki mið af raunverulegri samsetningu hópa, stuðningur fylgi þar sem þörfin er mest, og kennarar hafi svigrúm til að sinna kennslu, ekki aðeins halda kerfinu gangandi. Það er ekki nóg að hækka kröfurnar, forsendur þurfa að fylgja með. Að lokum, við getum haldið áfram að tala, sett fram fleiri stefnur og fundið ný slagorð. En við vitum að engin dyggðarskreyting felur raunveruleikann. Hann blasir við – á hverjum degi, inni í kennslustofunni. Árið er ekki 1974, þrátt fyrir að við séum að reka hluta skólakerfisins á forsendum þess tíma, og víða farin að ganga fram úr þeim viðmiðum sem þá voru sett. Við getum ekki haldið áfram á þeirri vegferð og ætlast til betri niðurstöðu. Spurningin er því ekki hvort við sjáum vandann. Spurningin er hvort við höfum kjark til að gera eitthvað í honum. Og það krefst þess að við vöndum okkur þann 16.maí. Því rétt eins og viðmið frá 1974 eiga ekki lengur við – þá er kominn tími til að endurskoða þá stefnu og þá forystu sem hefur mótað borgina í allt of langan tíma. Höfundur er grunnskólakennari og skipar 11. sæti hjá Miðflokknum í komandi borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar