Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar 17. apríl 2026 10:00 Að koma heim úr vinnu með hnút í maganum, kvíða og ótta – og vita að maður þarf að mæta aftur daginn eftir. Þetta er ekki undantekning. Þetta er veruleiki sem of margir starfsmenn búa við. Vinnustaðurinn á að vera vettvangur öryggis, samstarfs og þróunar. En þegar yfirmaðurinn verður uppspretta ótta breytist hann í andhverfu sína – stað þar sem fólk brotnar niður, smám saman. Vanlíðan vegna yfirmanns er ekki „bara streita“. Hún grefur undan sjálfsmynd fólks. Kvíði, minnkað sjálfstraust og stöðug tilhneiging til að forðast aðstæður verða hluti af daglegu lífi. Sumir einangrast, aðrir missa trú á eigin getu – og í alvarlegri tilvikum sér fólk enga aðra leið en að veikjast til að komast undan. Líkaminn bregst ekki síður við. Svefnleysi, höfuðverkir, magaverkir og síþreyta eru algeng einkenni. Þetta er verð sem fólk borgar fyrir slæma stjórnun. Og þegar þetta ástand varir lengi leiðir það ekki sjaldan til kulnunar. Rót vandans liggur oft í hegðun yfirmannsins. Hún getur verið lúmsk – eins og útilokun og vantraust – eða opin og gróf, í formi niðurlægingar og ógnana. Þetta er ekki „harður stjórnunarstíll“. Þetta er óheilbrigð hegðun sem getur valdið raunverulegum skaða. Og þetta er ekki nýtt. Strax í Hawthorne rannsóknum Elton Mayo (1924) kom fram að vinnustaðir eru fyrst og fremst félagsleg kerfi. Þegar samskipti og stjórnun bresta, þá brestur ekki bara árangurinn – heldur fólkið sjálft. Hawthorne rannsóknir Elton Mayo eru taldar upphafið að því sem við köllum „mannauðsstjórnun“ í dag. Þær breyttu því hvernig litið er á vinnustaði: úr því að vera bara „vélar“ yfir í að vera félagsleg kerfi. Elton Mayo: Lagði til að stjórnendur væru þjálfaðir í að hlusta á starfsmenn til að láta þá finna að þeir séu metnir að verðleikum (Stjórnun með samráði). Stofnun ársins 2025 – þegar gögnin tala Frásagnir starfsmanna eru ein hlið málsins. Gögnin segja aðra – og í þessu tilviki, sömu – sögu. Í niðurstöðum könnunar um Stofnun ársins 2025 hjá Reykjavíkurborg kemur fram að Sambýlið Grundarland er meðal þeirra vinnustaða sem fá lægstu einkunn í stjórnun. Einkunnin er 2,13 og hefur lækkað frá fyrra ári. Þegar þessi niðurstaða er sett í samhengi við frásagnir starfsmanna verður myndin óþægilega skýr. Þar sem fólk lýsir ótta og vanlíðan, endurspeglast það í mælanlegum niðurstöðum. Athygli vekur að ánægja og stolt í starfi mælist hærra en stjórnun. Það bendir til þess að starfsfólk vilji starfið sitt – en upplifi stjórnunarvandamál. Þegar bæði frásagnir og gögn benda í sömu átt er erfitt að líta á það sem tilviljun. Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2025 sýna að Sambýlið Grundarland er meðal þeirra sem fá lægstu einkunn í stjórnun. Vinnuslys tilfinninganna – frásagnir starfsmanna Í frásögnum núverandi og fyrrverandi starfsmanna við Sambýlið Grundarland birtist ekki eitt einangrað atvik heldur endurtekið mynstur. Þar er lýst vinnuumhverfi sem einkenndist af ótta, smámunasemi, stöðugri gagnrýni og vantrausti. Fólk lýsir því að hafa gengið á eggjum, kviðið vöktum og farið heim úr vinnu niðurbrotið. Sameiginlegur þráður er að aldrei hafi verið hægt að gera rétt. Starfsmenn segja að þeir hafi verið ávítaðir fyrir að taka sjálfstæðar ákvarðanir en jafnframt gagnrýndir fyrir að leita leiðbeininga. Þessi tvöföldu skilaboð sköpuðu ráðaleysi og óöryggi, jafnvel hjá reyndu starfsfólki. Margir lýsa því að smávægileg atriði hafi orðið að tilefni harkalegra viðbragða. Ekki var aðeins um að ræða gagnrýni á verk, heldur framkomu sem upplifuð var sem niðrandi. Með tímanum fóru sumir að efast um eigin hæfni og missa sjálfstraust. Frásagnirnar benda einnig til baktals, sundrungar og þess að starfsfólk hafi skynjað hver væri „í ónáð“ hverju sinni. Óöryggið varð þannig sameiginleg reynsla hópsins. Afleiðingarnar voru djúpar. Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir og forðun eru meðal þess sem starfsfólk lýsir. Sumir hættu störfum – ekki vegna vinnunnar sjálfrar, heldur vegna stjórnunarinnar. Þetta eru ekki aðeins sögur. Þetta eru vinnuslys tilfinninganna. Dreifing einkunna – heildarmyndin Þegar dreifing einkunna er skoðuð kemur í ljós að í tveimur flokkum frá 4 til 5 eru um 85% stofnana mælast með háa einkunn í stjórnun. Góð stjórnun er því ekki undantekning – hún er raunveruleg. Á sama tíma eru tveir flokkar frá 2 til 3,9 eru stofnanir í neðsta flokkum með um 15%. Þegar vinnustaður lendir í þessum flokki bendir það til verulegrar vanlíðanar í starfi. Og þegar slíkar niðurstöður fara saman við frásagnir starfsmanna um kvíða og niðurbrot fær tölfræðin mannlega merkingu. Þetta eru ekki bara tölur. Þetta eru vinnustaðir þar sem fólk er líklegra til að líða illa. Dreifing einkunna í stjórnun sýnir að þótt flestir vinnustaðir standi sig vel, er ákveðin hópur þar sem upplifun starfsfólks er verulega neikvæð. Þegar enginn grípur inn í Þegar slík mynstur koma fram vaknar spurning um ábyrgð. Hún liggur ekki aðeins hjá einstaklingum, heldur einnig hjá kerfinu sem á að bregðast við. Sem dæmi að tveir starfsmenn með yfir 25 ára reynslu fóru að tala um hvernig stjórnunin væri. Var svarið „með nýjum stjórnanda kemur nýir siðir – þið getið bara hætt“. Þegar starfsfólk treystir sér ekki til að tala, þegar kvartanir leiða ekki til sýnilegra breytinga og þegar fólk hættir frekar en að berjast áfram – þá er vandinn orðinn stærri en svo að hann sé einstaklingsbundinn. Þá er þögnin farin að tala. Þögn er ekki hlutleysi. Hún er afstaða. Hvað þarf að breytast? Fyrsta skrefið er að viðurkenna vandann. Annað skrefið er að tryggja að raddir starfsmanna leiði til raunverulegra aðgerða. Þriðja skrefið er ábyrgð. Skýr, sýnileg og óumdeilanleg. Við þurfum að spyrja einfaldra spurninga: Er vinnustaðurinn öruggur fyrir starfsfólk? Getur fólk sinnt starfi sínu án ótta? Ef svarið er nei – þá þarf að bregðast við. Þegar vinnustaður verður að stað þar sem fólk kvíðir því að mæta og fer heim brotið, þá er ekki lengur aðeins verið að tala um slæma stjórnun. Þá er það kerfið sem hefur brugðist. Og spurningin sem stendur eftir er ekki aðeins hver ber ábyrgð? Heldur hvort við séum tilbúin að taka þá ábyrgð? Þannig að sá eða sú sem stjórnar geri það á faglegu nótum. Velferðarsvið Reykjavíkur hefur brugðist að skoða stjórnuna. Það þarf að koma með innra eftirliti og sem dæmi að skoða hvaða stofnanir eru lægsta gildi í t.d. stofnun ársins og kanna af hverju það stafar. Af þessum 10 lægstu í Stofnun ársins 2025 eru 5 sambýli. Hvað er að þar gagnvart starfsfólki? Í þessu máli minnir Velferðarsvið Reykjavíkur helst á Ísdrottninguna í einni af myndum Disneys. Höfundur er viðskiptafræðingur, stuðningsfulltrúi og starfsmaður Grundarlands. Heimildir Niðurstöður byggja á könnuninni Stofnun ársins 2024 og 2025 sem framkvæmd er af Sameyki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun