Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 17. apríl 2026 10:28 Mæðgurnar hafa ræktað Schäferhunda undir ræktunarnafninu Gjóska. Getty Images Hæstiréttur hefur sýknað Hundaræktarfélag Íslands af kröfum mæðgna, sem rekið hafa schäferræktunina Gjósku um árabil, um ógildingu úrskurðar siðanefndar félagsins, sem vék mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár.
Mæðgunum var vísað úr félaginu í fimmtán ár með úrskurði siðanefndarinnar í janúar árið 2022, meðal annars fyrir að hafa falsað ættbókarskráningar. Úrskurður nefndarinnar er ítarlega reifaður í fréttinni hér að neðan: Mæðgurnar vildu ekki una úrskurði nefndarinnar og stefndi félaginu fyrir héraðsdóm í þrígang. Málatilbúnaði þeirra var tvisvar vísað frá dómi áður en málið var tekið til efnismeðferðar í þriðju tilraun. Þá var félagið sýknað af öllum kröfum mæðgnanna. Landsréttur taldi refsinguna úr hófi Landsréttur sneri þeim dómi við í apríl í fyrra og vísaði meðal annars til þess að mæðgunum hefði verið ákvörðuð refsing langt umfram það sem almennt tíðkaðist í félaginu. Alvarleiki brota mæðgnanna gæti ekki einn og sér skýrt þann mikla mun sem væri á þeim refsingum sem þeim hafði verið gert að sæta miðað við refsingar annarra félagsmanna. Landsréttur taldi því siðanefndina hvorki hafa gætt að jafnræðisreglu stjórnsýslulaga né meðalhófsreglu, sem fjallað væri um í reglum nefndarinnar. Tók fjögur ár að fá sömu niðurstöðu og upphaflega Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í vikunni, rúmum fjórum árum eftir að úrskurðarnefndin vísaði mæðgunum úr félaginu. Hæstiréttur taldi mæðgurnar ekki hafa sýnt fram á að brotið hefði verið gegn málsmeðferðarreglum í samþykktum Hundaræktarfélagsins eða reglum siðanefndar um aðild stjórnar félagsins að málinu fyrir nefndinni, skipan hennar eða reglum um sáttatilraunir. Þær hefðu auk þess ekki sýnt fram á að málsmeðferðin hefði verið í andstöðu við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga, sem giltu um málsmeðferð fyrir nefndinni samkvæmt reglum hennar. Þá taldi Hæstiréttur ekkert fram komið sem gæfi tilefni til að hnekkja niðurstöðum siðanefndarinnar um háttsemi mæðgnanna og með hvaða hætti hún hefði verið talin fela í sér brot gegn lögum og reglum félagsins. Hvað viðurlög mæðgnanna varðaði féllst Hæstiréttur á þau rök siðanefndarinnar að brot þeirra hefðu verið svo ósambærileg þeim brotum sem nefndin hefði fjallað um í öðrum úrskurðum sínum að réttlætt hefði mun þyngri viðurlög en áður hefði verið beitt. Með hliðsjón af þessu, jafnræðisreglu félagaréttar og því svigrúmi sem rétturinn taldi að játa yrði almennum félögum við að túlka og framfylgja innri reglum var ekki fallist á með mæðgunum að viðurlög þeirra hefðu verið svo þung að brotið hefði verið gegn jafnræði þeirra. Hundaræktarfélagið var því sýknað af kröfu mæðgnanna um ógildingu úrskurðar siðanefndarinnar. Mæðgurnar voru dæmdar til að greiða félaginu 2,4 milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum.
Hundar Gæludýr Félagasamtök Dómsmál Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira