„Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Smári Jökull Jónsson skrifar 17. apríl 2026 19:01 Costas Kadis er sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins. Vísir/Sigurjón Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu.
Sjávarútvegsstjóri sambandsins kom hingað til lands til að funda með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í dag. Á fundinum ræddu þau meðal annars sjálfbærar fiskveiðar, rannsóknar- og vísindastarf sem og samstarf á sviði fiskeldis. „Ég var mjög hrifinn af sérfræðiþekkingunni og frumkvöðlastarfsemi hjá fyrirtækjum sem starfa í fiskeldi. Við höfum séð mörg góð dæmi hér, við getum lært af ykkur og hagnast á þessu samstarfi,“ sagði Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins. Málefni hafsins voru meginefni samráðsfundarins og var honum ætlað að styrkja aukið og víðtækara samstarf á milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu. Möguleg aðild myndi skapa stöðugleika Kadis sagði samstöðu einkenna Evrópusambandið. Til að mynda hefðu fyrirtæki, sem þurftu að stöðva starfsemi þegar olíuverð hækkkaði vegna átaka í Miðausturlöndum, getað sótt fjárstyrki í sjóði sambandsins. „Ég er viss um að möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika og fyrirsjáanleika.“ Hann sagði Evrópusambandið meðvitað um mikilvægi fiskveiða fyrir Íslendinga og að tekið sé tillit til sérstöðu umsóknarríkja í samningaviðræðum. „Það eru fjölmörg dæmi um það í fyrri samningaviðræðum en einnig í yfirstandandi viðræðum. Þar sem sérstaða umsóknarríkja hefur verið tekin til greina í samningaviðræðum.“ Vill hafa efasemdafólkið með í samningateyminu Atvinnuvegaráðherra segir ljóst að bæði Ísland og Evrópusambandið hafi margt fram að færa á sviði sjávarútvegsmála. Ráðherra hafi rætt óformlega við Costas Kadis um mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. „Samningaviðræður eru það sem þær eru, þær eru samningaviðræður. Báðir aðilar leggja sín samningsmarkmið á borðið og síðan vinnum við það áfram,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson í viðtali að loknum blaðamannafundinum. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar.Vísir/Lýður Valberg „Við eigum frábært samningsfólk og ég ætla bara að segja það að auðvitað myndi ég vilja hafa þá, sem eru mest skeptískir á aðild okkar að Evrópusambandinu vegna sjávarútvegsmála, mjög þétt í samningateyminu. Það væri bara mjög gott fyrir okkur. Við viljum semja sem best,“ sagði Hanna Katrín.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjávarútvegur Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira