„Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 19. apríl 2026 21:37 Frank Aron Booker var frábær fyrir Val í kvöld. Anton Brink/Vísir Valur hafði betur gegn Keflavík í oddaleik liðana í N1 höllinni á Hlíðarenda 90-74 í kvöld og tryggði sér um leið síðasta sætið í undanúrslitum Bónus deild karla þar sem þeir mæta Grindavík. Frank Aron Booker ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik. „
Ég er bara svo ánægður með það hvernig við spiluðum“ sagði Frank Aron Booker sem átti stórkostlegan leik fyrir Val í kvöld og endaði með 29 stig. „Við gátum alveg frákastað betur en við náðum að koma saman og við hittum úr skotum loksins og náðum að verjast Remy og Egor og þetta var bara algjör barátta, takk fyrir mig Keflavík“ Leikurinn var mjög jafn lengst af en Valsmenn náðu að berja aðeins frá sér í fjórða leikhluta. „Já mér fannst þeir vera miklu aggressívari í sóknarfráköstunum og þeir náðu helvíti mörgum boltum en við náðum að stíga aðeins betur út og ná þessum boltum“ Frank Aron Booker átti möguleg sinn besta leik á ferlinum en hann skoraði 29 stig í kvöld og var gjörsamlega frábær fyrir Val. „Það getur alveg verið en ef ég er hreinskilinn er mér drullusama hvað ég skora mikið. Mig langar bara að sjá aðra gera það gott og ég reyni mitt besta. Það eina sem skiptir máli er að við vinnum“ Frank Aron Booker fann fyrir ákveðinni ábyrgð í leiknum í kvöld. „Mér leið bara eins og ég tók það sem þeir gáfu mér. Skotin sem að ég fékk opin, ég tók þau bara og ef ég sá galopið sniðskot þá tók ég það. Ég er bara hérna að skemmta mér og ég vildi að pabbi væri hérna en svona er þetta en hann horfir niður og er mjög ánægður“ Frank Aron Booker missti föður sinn fyrr á tímabilinu og hefur þetta verið erfitt tímabil fyrir hann persónulega. „Þetta er búið að vera drullu erfitt og ég get alveg verið smá hreinskilinn að ég er ennþá smá dauður að innann ennþá en þetta er partur af lífinu og ég þarf bara einhvern veginn að lifa með þessu en hann veit að ég elska hann mjög mikið og hann elskaði mig út af lífinu eins og þið sáuð fyrir tveim árum síðan“ „Ég veit að hann er algjör Valsari og hann er mjög ánægður núna“ Frábær sería gegn Keflavík á enda en næst tekur við deildarmeistarar Grindavíkur. „Mér líður eins og þessi sería er búin að gefa okkur smá töffaraskap til þess að koma inn í næstu seríu sem verður á móti Grindavík sem er hörku lið“ „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ sagði Frank Aron Booker.
Valur Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Körfubolti Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Körfubolti Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Körfubolti Fleiri fréttir Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Stjörnukonur jöfnuðu metin Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Ágúst Íslandsmeistari í fyrsta sinn og Thelma fagnaði fimmta titlinum Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Hleypur um nakinn ef hann vinnur Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Sjá meira