Bjartsýni í boði Sigurður Vopni Vatnsdal skrifar 21. apríl 2026 08:18 Ég er bjartsýnismaður og finnst mikilvægt að benda á það sem jákvætt er og forðast svartsýni. Það þýðir ekki að maður láti framhjá sér fara það sem miður fer, heldur legg ég áherslu á að leita jákvæðra leiða til að leysa vandann hverju sinni. Ég flutti á Skagann af því að ég frétti að hér væri gott að búa. Það get ég staðfest, hér er gott samfélag með góðri þjónustu og miklum framtíðarmöguleikum. Þessi upplifun mín af því að hafa flutt hingað á Akranes er svo jákvæð að nú býð ég mig fram til þjónustu við þetta samfélag, bæjarfélagið sem tók mér svo vel. Hér vil ég vera og leggja mitt af mörkum til að styrkja og breyta því sem þarf í vaxandi bæ. Samspilið sem virkar Samfélag er flókið net einstaklinga, fjölskyldna, félaga, fyrirtækja og opinberra stofnana. Allt þarf þetta að virka, samskipti og viðskipti, þjónusta og atvinna. Áherslur fólks eru misjafnar, fólk hefur fjölbreyttar þarfir og væntingar því þannig er lífið. Við sem verðum kosin í bæjarstjórn á Akranesi verðum að hafa augun á mörgu svo vel takist til. Atvinna er undirstaða þess að við getum rekið okkar bæjarfélag. Atvinnustarfsemi á Íslandi hefur breyst mikið undanfarin ár og þar er Akranes engin undantekning. Við höfum verið dugleg að finna ný tækifæri og þeirri vinnu vil ég halda áfram. Bæjarstjórnin beitir sér Framlag allra er mikilvægt og skilar sínu til þjóðfélagsins. Stundum heyrir maður talað niður til sumra starfa, en önnur talin mikilvægari. Einkum heyrist að opinber störf séu ómerkilegri en störf á almennum markaði. Hér á Akranesi eru stórir opinberir vinnustaðir, sem við eigum að leggja okkur fram um að efla og styrkja. Við þurfum að stækka sjúkrahúsið og koma heilsugæslunni í nýtt húsnæði. Þetta gerum við í samstarfi við ríkið. Heilbrigðistofunin er stór vinnustaður og hana ber að efla eftir mætti. Annað dæmi er dvalarheimilið Höfði. Það skiptir höfuðmáli að dvalarheimilið sé stutt af krafti. Nú er í undirbúningi stækkun Höfða og hefur bæjarstjórn unnið ötullega að þessu og þarf að halda dampi þar áfram. Hér að ofan hef ég aðeins nefnt tvo vinnustaði á Akranesi sem skiptir höfuðmáli að bæjarstjórn standi vörð um og beiti sér fyrir eflingu þeirra. Bæði sjúkrahúsið og dvalarheimilið Höfði bjóða þjónustu sem við á Akranesi viljum geta sótt í bænum okkar en ekki í aðra landshluta. Við viljum vera bær sem byggir á okkar forsendum en ekki úthverfi frá Reykjavík. Við verðum áfram bjartsýn á Akranesi og leitum saman að nýjum tækifærum til að efla bæinn sem atvinnusvæði og sem kjarna fyrir öfluga opinbera þjónustu. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akranes Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar