Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar 23. apríl 2026 09:02 Umræðan um dánaraðstoð hefur lengi byggst á þeirri forsendu að fólk með fötlun sé almennt andvígt lögleiðingu hennar, ekki síst vegna þess að sú afstaða hefur verið áberandi í málflutningi hagsmunasamtaka fatlaðra. Ný gögn frá Bretlandi sýna þó flóknari mynd: meirihluti fatlaðs fólks styður rétt til dánaraðstoðar. Þetta kallar á endurnýjaða umræðu hér á landi um sjálfsákvörðunarrétt, vernd og virðingu í lok lífs. Helstu áhyggjur hagsmunasamtaka hafa einkum snúið að því að einstaklingar með fötlun gætu orðið fyrir beinum eða óbeinum þrýstingi til að óska eftir dánaraðstoð, þrátt fyrir að lagalegt ferli í þeim löndum þar sem hún er heimil sé afar strangt og hannað til að koma í veg fyrir slíkt. Áhyggjur af möglegum þrýstingi eru þó verðugt umræðuefni. Hins vegar sýna niðurstöður skoðanakannana að afstaða fatlaðs fólks er hvorki einsleit né eins neikvæð og oft er haldið fram. Umræðan hefur verið áberandi í Bretlandi undanfarin misseri í tengslum við fyrirhugaða lagasetningu um dánaraðstoð. Í september 2025 birti Susan Brown, rannsakandi hjá Scottish Parliament Information Centre (SPICe), helstu niðurstöður breskra skoðanakannana. Samantekt hennar dregur fram mun fjölbreyttari mynd af afstöðu fatlaðra en áður hefur komið fram í opinberri umræðu. Viðhorf fólks með fötlun hafa breyst Viðhorfin eru ekki ný af nálinni. Strax árið 2005 benti skýrsla lávarðadeildar breska þingsins á að viðhorf fatlaðs fólks væru fjölbreytt. Það sem meira var þá sýndu sumar kannanir stuðning sem var sambærilegur við eða meiri en hjá ófötluðum. Í YouGov-könnun frá 2004 töldu 82% svarenda með fötlun að gildandi lög mismunuðu dauðvona einstaklingum sem ekki gætu bundið enda á eigið líf án aðstoðar, samanborið við 75% annarra. Í skýringunni sem fylgdi spurningunni kom fram: „Samkvæmt núgildandi lögum er fólki heimilt að binda enda á eigið líf, en það er refsivert að aðstoða einhvern sem vill gera slíkt. Þetta þýðir að líkamlega hæfum, dauðvona einstaklingi er heimilt að ákveða hvenær hann deyr, en dauðvona einstaklingur sem er líkamlega ófær um að framkvæma það sjálfur getur ekki fengið aðstoð til að gera það.“ Með öðrum orðum: lögin voru talin hygla þeim sem höfðu líkamlega getu til að deyja á eigin forsendum, en útiloka aðra. Síðari kannanir hafa staðfest þessa stöðu. Í könnun fyrir Dignity in Dying árið 2014 taldi meirihluti þátttakenda með fötlun rök gegn dánaraðstoð þættu ekki sannfærandi. Þrátt fyrir andstöðu helstu hagsmunasamtaka sýndu niðurstöðurnar að meirihluti fatlaðra var hlynntur dánaraðstoð. Enn skýrari niðurstöður komu fram árið 2022 þegar 77% félagsmanna Disability Equality Scotland sögðust hlynnt dánaraðstoð, en aðeins rúm 10% voru andvíg. Þetta er skýr meirihlutaafstaða. Áfram mikilvæg spurning um traust og vernd Þrátt fyrir þetta eru áhyggjur af mögulegum þrýstingi áfram áberandi. Í YouGov-könnun árið 2025 töldu 58% Breta og 51% Skota óttast að fatlaðir væru í meiri hættu en aðrir á að verða fyrir þrýstingi ef dánaraðstoð yrði heimil. Slíkar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að ræða ekki aðeins um lagasetningu heldur einnig um aðstæður og samfélagslegt traust. Einmitt þess vegna skiptir máli að hafa í huga að í þeim löndum þar sem dánaraðstoð er heimil er ferlið strangt og byggt á því að tryggja sjálfstæða, upplýsta ákvörðun einstaklingsins. Það felur í sér ítarlegt mat og vandaða faglega umgjörð sem á að útiloka hvers konar þrýsting. Hvað vitum við um Ísland? Á Íslandi er lítið vitað um afstöðu fatlaðs fólks til dánaraðstoðar. Þótt fyrir liggi niðurstöður könnunar heilbrigðisráðherra frá árinu 2023, þar sem 84,4% sjúklinga í Félagi lungnasjúklinga, Heilaheill, Krafti, MS-félagi Íslands og Parkinsonsamtökunum lýstu sig hlynnta því að dánaraðstoð yrði leyfð, gefa þær takmarkaða innsýn í reynslu og sjónarmið fatlaðs fólks. Lífsvirðing tekur undir með ÖBÍ réttindasamtökum sem árétta í umsögn sinni um þingsályktunartillögu um dánaraðstoð, sem lögð var fram að hausti 2025, að ekki liggi fyrir upplýsingar um viðhorf fatlaðs fólks hér á landi og mikilvægt sé að kanna sjónarmið þess. Reynslan frá Bretlandi sýnir að það er einföldun að tala um eina afstöðu fatlaðra. Þvert á móti benda gögn til þess að margir líti á hana sem spurningu um sjálfsákvörðunarrétt ekki síður en vernd. Ef umræðan á að vera málefnaleg og byggð á raunverulegum sjónarmiðum er brýnt að afla betri gagna hér á landi og tryggja að raddir fólks með fötlun fái að heyrast á eigin forsendum. Annars er hætt við að við höldum áfram að ræða fólk með fötlun án þess að hafa það með í umræðunni. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar