Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson skrifar 28. apríl 2026 08:52 Til frambjóðenda í Reykjavík. Sjáum fyrir okkur sviðsmynd. Foreldrar í Laugardal, sem skattgreiðendur í Reykjavík, niðurgreiða heitan skólamat í öllum hverfum borgarinnar. Sem er gott enda er næring barna mikilvæg. Nema hvað: í Laugardal fá börn ekki heitan mat í skólanum. Þau geta bara komið með nesti eða sleppt því að borða. En við viljum endilega bjóða líka börnunum okkar upp á heitan mat í skólanum. Er það ósanngjörn krafa? Heimtufrekja? Það er reyndar búið að lofa okkur aðgangi að veislueldhúsi sem borgin á. Börnin okkar mega fara þangað inn tvisvar í viku og grilla samlokur. Nema það séu stórar veislur planaðar. Jólatónleikar, úthverfarapparar (úr nágrannasveitarfélögum) nú eða sívinsælar vinnuvélasýningar. Þá fellur hádegismaturinn bara niður hjá krökkunum. Eigum við bara að hætta að væla og sætta okkur við þetta? Sem betur fer er þetta er ekki staðan með skólamat, en þetta er staðan í Laugardal þegar kemur að íþróttaiðkun. Íbúar Laugardals eiga núll íþróttahús. Zero. Skólarnir eiga ekki íþróttahús og hverfisíþróttafélögin Ármann/Þróttur, eiga ekki íþróttahús. Íbúar Laugardals eru tuttugu þúsund. Jafn margir og íbúar Grafarvogs. Jafn margir og íbúar Garðabæjar. Jafn margir og íbúar Akureyrar. Foreldrar í Laugardal niðurgreiða uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja í öðrum hverfum á meðan börnin okkar fá ekki einu sinni skólaíþróttakennslu í samræmi við aðalnámskrá. Ármann, sem m.a. rekur stærstu körfuknattleiksdeild borgarinnar og elstu frjálsíþróttadeild landsins á enga aðstöðu til iðkunar og þarf að treysta á miskunnsemi borgarstarfsmanna um úthlutun tíma í sölum hér og þar. Börnunum er svo ítrekað varpað á dyr fyrirvaralaust þegar Reykjavíkurborg fær tækifæri til að nýta salina til tekjuöflunar. Þær tekjur skila sér ekki til baka inn í hverfi (eins og þegar önnur íþróttahús eru leigð út) Nei, þær fara einnig í að greiða fyrir þjónustu við önnur hverfi borgarinnar. Íþróttir eru samfélagslegur hornsteinn, bæði þegar kemur að lýðheilsu og félagsþroska. Forvarnagildi íþróttaiðkunar er ótvírætt. Á tímum hnignandi geðheilsu barna og óhóflegrar skjánotkunar má færa rök fyrir því að sá þáttur starfsins hafi aldrei verið meira áríðandi. Að hittast úti í íþróttahúsi. Þekkja húsvörðinn og eiga samastað utan heimilis og skóla. Jafn áríðandi og góð næring. Höfundur er íbúi í Laugardalshverfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skóla- og menntamál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar