Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann Pétur Marteinsson skrifar 29. apríl 2026 07:15 Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði. Fyrir samkomulagið ríkti engin framtíðarsýn um hvernig fólk á höfuðborgarsvæðinu ætti að komast leiðar sinnar. Hvort sem það væri með einkabílum, almenningssamgöngum, gangandi eða hjólandi. Sveitarfélögin kepptust um fjármagn og umferðin þyngdist á meðan. Úr uppfærðum sáttmála í fullkomið ábyrgðarleysi Í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna árið 2022 var sáttmálinn tekinn upp að nýju og endurskoðaður – það ferli tók tæp tvö ár. Um leið og farið var í að opna samninginn þá þurfti að ná samstöðu um forgangsröðun á nýjan leik. Þar vildu allir fá sínu framgengt, fyrir sitt sveitarfélag og það tók tíma og útsjónarsemi að ná niðurstöðu sem allir gátu sætt sig við. Samkomulög sem þessi, um stórar innviðaframkvæmdir, eru í eðli sínu langtímaverkefni. Þau eiga hvorki né geta verið háð sveiflum á fjögurra ára fresti með algjörri uppstokkun. Að endurskoða sáttmálann frá grunni þýðir að henda öllu í ruslið sem unnið hefur verið að á síðustu árum í samgöngumálum – til þess eins að setjast aftur að teikniborðinu. Með nýjum nefndum, meiri töfum, minni framkvæmdum og engum breytingum. Á meðan heldur umferðin áfram að þyngjast um 70 nýja bíla á viku. Umferð sem er þegar allt of þung. Þetta er það sem hægriflokkarnir í Reykjavík boða núna og lýsir fullkomnu ábyrgðarleysi. Kemur ekki til greina að byrja upp á nýtt Samfylkingin hafnar þessum hugmyndum. Við sýnum ábyrgð og stöndum við gerða samninga. Til að stytta ferðatíma, minnka tafir og auka öryggi – fyrir fólkið í borginni. Til að bæta lífsgæði og næra samfélagið. Auðvitað er hægt að skoða einstaka útfærslur í hverju sveitarfélagi fyrir sig þar sem þau halda á skipulagsvaldinu en nú er tími framkvæmda – ekki fleiri nefnda. Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að byrja allt upp á nýtt. Það er auðvelt að stilla upp andstæðum pólum í þessari umræðu því það tengja allir við það að sitja fastir í umferð eða fá ekki bílastæði. En stjórnmálafólk verður að þora að hugsa til framtíðar, sýna stjórnmálalega forystu og standa við gerða samninga. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Pétur Marteinsson Samgöngur Mest lesið Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er það glæpur að vilja stunda ábyrgar fiskveiðar? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Hafró ver hvalinn en gleymir fiskinum Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Erfitt að veiða ufsa án kvóta í þorski Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Jæja kosningunum lokið Elías B. Elíasson skrifar Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Staðan í viðræðum Bandaríkjanna og Grænlands Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Nú er tækifærið - vinnum saman að betri grunnskóla Hólmfríður Arna Þórisdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason skrifar Skoðun Opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Spurningunni breytt – en ekki forsendunum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Uppskrift að stéttskiptu samfélagi og vonleysi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Jóhann Ingi óskarsson skrifar Skoðun Ísland verðleggur sig út af markaði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Framþróun í tónlistarnámi á háskólastigi á Íslandi Pétur Jónasson skrifar Skoðun Höfum við kjark til að gefa fólki tækifæri? Jónas Ingi Jónasson skrifar Sjá meira
Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði. Fyrir samkomulagið ríkti engin framtíðarsýn um hvernig fólk á höfuðborgarsvæðinu ætti að komast leiðar sinnar. Hvort sem það væri með einkabílum, almenningssamgöngum, gangandi eða hjólandi. Sveitarfélögin kepptust um fjármagn og umferðin þyngdist á meðan. Úr uppfærðum sáttmála í fullkomið ábyrgðarleysi Í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna árið 2022 var sáttmálinn tekinn upp að nýju og endurskoðaður – það ferli tók tæp tvö ár. Um leið og farið var í að opna samninginn þá þurfti að ná samstöðu um forgangsröðun á nýjan leik. Þar vildu allir fá sínu framgengt, fyrir sitt sveitarfélag og það tók tíma og útsjónarsemi að ná niðurstöðu sem allir gátu sætt sig við. Samkomulög sem þessi, um stórar innviðaframkvæmdir, eru í eðli sínu langtímaverkefni. Þau eiga hvorki né geta verið háð sveiflum á fjögurra ára fresti með algjörri uppstokkun. Að endurskoða sáttmálann frá grunni þýðir að henda öllu í ruslið sem unnið hefur verið að á síðustu árum í samgöngumálum – til þess eins að setjast aftur að teikniborðinu. Með nýjum nefndum, meiri töfum, minni framkvæmdum og engum breytingum. Á meðan heldur umferðin áfram að þyngjast um 70 nýja bíla á viku. Umferð sem er þegar allt of þung. Þetta er það sem hægriflokkarnir í Reykjavík boða núna og lýsir fullkomnu ábyrgðarleysi. Kemur ekki til greina að byrja upp á nýtt Samfylkingin hafnar þessum hugmyndum. Við sýnum ábyrgð og stöndum við gerða samninga. Til að stytta ferðatíma, minnka tafir og auka öryggi – fyrir fólkið í borginni. Til að bæta lífsgæði og næra samfélagið. Auðvitað er hægt að skoða einstaka útfærslur í hverju sveitarfélagi fyrir sig þar sem þau halda á skipulagsvaldinu en nú er tími framkvæmda – ekki fleiri nefnda. Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að byrja allt upp á nýtt. Það er auðvelt að stilla upp andstæðum pólum í þessari umræðu því það tengja allir við það að sitja fastir í umferð eða fá ekki bílastæði. En stjórnmálafólk verður að þora að hugsa til framtíðar, sýna stjórnmálalega forystu og standa við gerða samninga. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun
Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar
Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar
Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson skrifar
Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun