Tryggjum að Hveragerði verði áfram bær fyrir alla Birgitta Ragnarsdóttir skrifar 29. apríl 2026 07:45 Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hafa ASÍ og BSRB beint kastljósinu að einu stærsta réttlætismáli samtímans, húsnæðismálum. Á nýlegum fundi samtakanna var sérstaklega fjallað um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaga í uppbyggingu húsnæðis. Spurningin sem brennur á mörgum er einföld – en þung: Hvar á unga fólkið og venjulegt launafólk að búa? Húsnæði er ekki bara markaðsvara Á undanförnum áratugum hefur húsnæðismarkaðurinn í auknum mæli mótast af lögmálum markaðarins. Á sama tíma hefur framboð á félagslegu húsnæði dregist verulega saman. Fyrir um 25 árum voru um 7% íbúða hluti af verkamannabústaðakerfinu – í dag er hlutfall almennra íbúða innan við 1%. Þessi þróun hefur raunverulegar og áþreifanlegar afleiðingar: Ungt fólk á erfiðara með að komast inn á markaðinn Fjölskyldur búa við meira óöryggi Láglaunafólk á erfiðara með að festa rætur í samfélaginu Þess vegna skiptir almenna íbúðakerfið svo miklu máli. Sveitarfélögin skipta sköpum Eitt það mikilvægasta sem fram kom á fundinum er að sveitarfélögin eru lykilaðilar í lausninni. Þau skipuleggja land fyrir húsnæði, úthluta lóðum og taka þátt í fjármögnun með stofnframlögum. Kerfið byggir á samvinnu ríkis og sveitarfélaga til að tryggja byggingu leiguíbúða á viðráðanlegu verði. Markmiðið er skýrt, þ.e. að fólk greiði ekki meira fyrir húsnæði en það ræður við. Þetta er ekki bara stefna – þetta er verkfæri sem virkar, ef vilji er fyrir hendi. Hveragerði á að vera fyrir alla Sem frambjóðandi á S-listanum í Hveragerði spyr ég: Viljum við bæ fyrir alla – eða aðeins fyrir suma? Hveragerði hefur vaxið hratt og er eftirsóttur staður til búsetu. En án fjölbreytts húsnæðis lokum við dyrunum fyrir stórum hópi fólks, svo sem ungu fólki sem vill setjast hér að og eldra fólki sem vill minnka við sig. Við megum ekki láta bæinn þróast eingöngu fyrir þá sem hafa mest á milli handanna. Við verðum að halda áfram Hveragerði hefur þegar stigið mikilvæg skref með þátttöku í uppbyggingu húsnæðis í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. En það er ekki nóg – við verðum að halda áfram. Almenna íbúðakerfið er eitt af fáum raunhæfum verkfærum sem við höfum til að: auka framboð á hagkvæmu húsnæði draga úr þrýstingi á markaðnum tryggja félagslegt réttlæti Ef sveitarfélög halda að sér höndum hægir á uppbyggingu – og vandinn eykst enn frekar. Skýr stefna til framtíðar Sem hluti af S-listanum vil ég að Hveragerði: haldi áfram samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög nýti skipulagsvald sitt til að tryggja lóðir fyrir slíka uppbyggingu taki virkan þátt í almenna íbúðarkerfinu Þetta snýst ekki um hugmyndafræði – þetta snýst um raunveruleg lífsgæði íbúa í Hveragerði. Húsnæði er grunnforsenda öryggis og lífsgæða Húsnæði er ein af grunnforsendum öryggis og lífsgæða. Það eiga ekki að vera forréttindi að koma sér þaki yfir höfuðið heldur sjálfsagður réttur. Ef við viljum að Hveragerði sé samfélag fyrir alla – en ekki aðeins þá sem hafa efni á því – þurfum við að huga vel að næstu skrefum. Á nýlegum fundi frambjóðenda í Hveragerði með ungmennaráði var einmitt spurt um húsnæðismál ungs fólks. Við sem skipum S-listann viljum að ungt fólk geti búið hér og alið upp börnin sín, óháð efnahag. Til þess þurfum við að taka skýra og markvissa afstöðu. Við ætlum að vinna að því að Hveragerði verði áfram fallegur og fjölskylduvænn bær þar sem venjulegt fólk á raunhæfa möguleika á að koma sér upp heimili. Við þurfum að halda áfram og gera enn betur. Höfundur er oddviti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Húsnæðismál Fasteignamarkaður Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar