Handbolti

Tefldu á tæpasta vað en leika á­fram í Olís-deildinni

Sindri Sverrisson skrifar
Stjörnukonur halda sæti sínu í Olís-deildinni.
Stjörnukonur halda sæti sínu í Olís-deildinni. VÍSIR/VILHELM

Stjörnukonur lentu sjö mörkum undir gegn Gróttu í oddaleik um sæti í Olís-deildinni í handbolta á næstu leiktíð en fögnuðu sigri og verða því áfram í deild þeirra bestu.

Stjarnan endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar í vor og varð því að fara í umspil við lið úr Grill 66-deildinni. Því lauk ekki fyrr en í oddaleik gegn Gróttu í kvöld, í Garðabænum, þar sem Stjarnan vann að lokum 25-23.

Grótta hafði komist í 2-1 í einvíginu og fékk því tvo leiki til að tryggja sér sigur en tapaði þeim báðum. Í kvöld byrjuðu Seltirningar mun betur og komust til að mynda í 14-7 og svo 17-10 í upphafi seinni hálfleiks.

Stjarnan skoraði þá fjögur mörk í röð á skömmum tíma og kom sér strax aftur inn í leikinn, og náði svo að jafna 18-18 þegar seinni hálfleikur var hálfnaður.

Stjarnan var svo sterkari á lokakaflanum og uppskar sigurinn sem tryggir liðinu áframhaldandi veru í efstu deild.

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir var öflug í marki Stjörnunnar og skráð með 17 varin skot á vef HB Statz. Inga María Roysdóttir var svo markahæst með sex mörk og Natasja Hammer skoraði fimm. Hjá Gróttu var Katrín S Scheving Thorsteinsson markahæst með sjö mörk og Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×