Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Lovísa Arnardóttir skrifar 2. maí 2026 14:55 Myndin er tekin af bandarískum hermönnum við æfingar í Hohenfels, Germany, 30 April 2026. Vísir/EPA Talskona NATO segir sambandið nú vinna að því í samvinnu við Bandaríkin að „skilja smáatriðin“ í ákvörðun Bandaríkjanna um að afturkalla þúsundir hermanna frá Þýskalandi.
Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um afturköllunina í gær. Stjórnvöld í Þýskalandi segja ákvörðunina fyrirsjáanlega og segja hana áminningu um að Evrópa þurfi að fjárfesta meira í eigin vörnum. Í frétt Guardian um málið segir að brottflutningur Bandaríkjamanna, sem Pentagon sagði að myndi eiga sér stað á næstu sex til tólf mánuðum, komi í kjölfar gagnrýni frá Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, á stríð Trumps við Íran. Kanslarinn sagði á mánudag að leiðtogar Írans væru að niðurlægja Bandaríkin en Trump svaraði því fljótt og sagði að Merz „vissi ekki hvað hann væri að tala um“ og stuttu síðar nefndi hann möguleikann á brottflutningi hersveita. Haft er eftir Allison Hart, talsmanni NATO, í frétt Guardian að bandalagið sé að „vinna með Bandaríkjunum að því að skilja smáatriðin í ákvörðun þeirra um herafla í Þýskalandi“. We are working with the U.S. to understand the details of their decision on force posture in Germany. This adjustment underscores the need for Europe to continue to invest more in defence and take on a greater share of the responsibility for our shared security - where we’re…— NATO Spokesperson (@NATOpress) May 2, 2026 Í fréttinni segir að yfirlýsingin gefi til kynna að tilkynningin um brottflutninginn hafi verið einhliða. „Þessi breyting undirstrikar þörfina fyrir Evrópu til að halda áfram að fjárfesta meira í vörnum og taka á sig meiri ábyrgð á sameiginlegu öryggi okkar,“ sagði Hart á samfélagsmiðlum og benti á að bandamenn NATO hefðu náð árangri síðan þeir samþykktu í fyrra að fjárfesta fimm prósentum af vergri landsframleiðslu í varnarmálum til að mæta vaxandi ógn frá Rússlandi. Í fréttinni er einnig haft eftir talsmanni þýska varnarmálaráðuneytisins að fyrirhugaður brottflutningur Bandaríkjamanna frá herstöðvum í Þýskalandi sýni fram á að það verði að styrkja „Evrópu-stoðina“ innan NATO. „Það var fyrirséð að Bandaríkin gætu dregið herlið frá Evrópu, þar á meðal Þýskalandi,“ sagði talsmaðurinn og áætlaði að núverandi herafli Bandaríkjanna í Þýskalandi væri 40.000 manns. Í heildina er áætlað að í Evrópu séu um 68 þúsund bandarískir hermenn.
Bandaríkin Þýskaland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran NATO Tengdar fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17 Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi. 30. apríl 2026 06:35 Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. 14. apríl 2026 06:34 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17
Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi. 30. apríl 2026 06:35
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. 14. apríl 2026 06:34