Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir og Rósanna Andrésdóttir skrifa 4. maí 2026 08:48 Við í Garðabæ getum verið stolt af fagfólkinu okkar sem starfar á gólfinu í skólum bæjarins. Við sem störfum í skólunum, foreldrar í samfélaginu og starfsfólkið á skólaskrifstofunni reynum öll að mæta börnunum okkar eins og vel og við getum. Þegar kemur að börnum sem af einhverjum ástæðum þurfa meiri þjónustu en almennt gerist, ríkir þó ákveðið úrræðaleysi sem bregðast þarf við. Öll börnin líða fyrir það að við mætum ekki þeim hópum sem þurfa hvað mest á því að halda. Grípum börnin miklu fyrr Í leikskólum Garðabæjar er gríðarlega faglegt og gott starf unnið. Við viljum sameiginlega skólanámskrá fyrir elstu nemendur leikskólana og gera þannig undirbúninginn fyrir fyrstu árin í grunnskóla enn skilvirkari.Það er mikilvægt að við grípum þau börn sem þess þurfa, strax á fyrstu árum grunnskólans. Við viljum taka enn þéttar utan um þau, fækka nemendum á hvern umsjónarkennara og auka aðkomu sérkennara í fyrstu tveimur árgöngum grunnskólans. Við viljum leggja áherslu á bekkjarstjórnun svo að þeir kennarar sem sinna þessum mikilvæga hópi hafi öll þau verkfæri sem þarf til þess að ná sem best utan um þau. Þannig aðlaga þau nemendur inn í skólaumhverfið, grípa þau sem þess þurfa og skapa þannig menningu innan hópsins sem einkennist af vinnufriði, virðingu fyrir skólanum og þeim verkefnum sem þar eru lögð fyrir.Þetta gerist ekki nema með því að horfast í augu við vandann, bregðast við raunverulegum þörfum og taka utan um starfsfólkið okkar og það viljum við gera. Öflug sérdeild í Garðabæ Í Garðabæ höfum við ekki úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda.Einungis tveir sérskólar, sem sinna þessum hópi barna, eru á höfuðborgarsvæðinu og báðir sprungnir. Þau börn sem ekki komast inn í þá halda áfram í almenna skólakerfinu. Þar gerir starfsfólk skólanna sitt allra besta til þess að mæta þörfum þessara barna. Þessi börn eiga samt rétt á töluvert meiri þjónustu en þau fá í almennu skólunum. Þau eiga rétt á að vera í sérdeild þar sem eru færri nemendur og fleira fagfólk sem sérhæfir sig í málefnum sem að þeim snúa og þeirra þörfum.Við heyrum stundum talað um að mögulega eigi að stofna sérdeild, en svo líður tíminn og ekkert gerist. Á meðan tíminn líður, þá sitja þessi börn inni í almenna skólakerfinu og þeim er ekki mætt með þeirri sérfræðiþekkingu sem þau eiga rétt á, þrátt fyrir að öll séu að gera sitt besta.Með öflugri sérdeild í Garðabæ gætum við betur mætt þörfum þessa hóps og veitt þeim þá þjónustu sem þau eiga rétt á. Aukum gæði kennslu og ánægju allra nemenda í skólunum Í mörgum bekkjum eru örfáir nemendur sem hafa mikil áhrif á heildina. Því er ýmist skellt á hegðunarvanda, greiningarleysi, lyfjaleysi, foreldravandamál, kennarinn ræður ekki við verkefnið eða „þetta er bara svona og ekkert hægt að gera“. Nemandi sem ítrekað sprengir upp kennslustundir og truflar bekkjarfélaga er að senda okkur skilaboð. Hann er að segja okkur að hann ræður ekki við þessar aðstæður, að sitja kyrr við borð, hlusta, hlýða og gera allt sem honum er sagt að gera. Kerfið okkar býður ekki upp á annað en að fjarlægja viðkomandi nemanda úr stofunni í örstutta stund í besta falli. Við setjum hann svo aftur inn í sömu aðstæður stuttu síðar og vonum að núna muni hann haga sér. Það virkar sjaldnast.Þessir einstaklingar einangrast hægt og rólega þar sem bekkjarfélagar verða þreyttir á endalausri truflun. Gæði kennslunnar verða töluvert minni og kennarinn verður þreyttur á þeim vinnuaðstæðum sem honum er boðið upp á dag eftir dag.Oftast eru þessir nemendur stútfullir af hæfileikum sem aldrei fá að njóta sín inni í skólakerfinu vegna úrræðaleysis.Ekkert barn vill verða útskúfað og ekkert foreldri vill að barnið sitt sé að skapa sér vont orðspor í skólastofunni. Það er okkar að bregðast við. Öll eiga rétt á kennslu án truflunar, bæði nemendur og kennarar og það verður þreytandi til lengdar að fá engan vinnufrið. Er það ekki hagur allra barnanna í bekknum að við grípum þessa einstaklinga miklu fyrr með úrræðum sem eru hvetjandi?Við viljum að í skólum bæjarins séu færnirými sem er athvarf þessara nemenda. Kennari veit þá hvert nemandinn á að fara og nemandinn upplifir það ekki sem refsingu að vera tekinn út. Þar viljum við að hægt sé að efla félags- og sjálfsstjórnarfærni, smíða, teikna, skapa og líka læra. Færnirýmið gegndi þá þannig því hlutverki að hvíla nemandann, bekkinn, kennarann og ýta á nemandann að skila af sér einhvers konar vinnu.Einnig viljum við að í öllum skólum séu námsver ætluð þeim nemendum sem þurfa aðstoð í náminu. Mikilvægt er að þessu tvö úrræði séu aðskilin, enda eðli þeirra ólíkt. Mætum erlendu nemendum okkar betur Íslenskt samfélag hefur breyst mikið á síðustu árum. Hingað hafa flutt einstaklingar víða að úr heiminum og er samfélagið orðið mun fjölbreyttara en áður. Skólarnir okkar eru ekki lengur eins einsleitir og þeir voru áður en breytingarnar urðu, mis hraðar og mis miklar eftir sveitarfélögum og skólum. Í Garðabæ er hópur nemenda með íslensku sem annað mál sem þurfa oft fjölþættan stuðning. Stuðningurinn sem þessi hópur þarf einskorðast ekki einungis við tungumálakennslu þó hún skipti vissulega sköpum þegar kemur að aðlögun í nýju samfélagi. Það þarf einnig að tryggja að börn og foreldrar séu meðvituð um íþrótta- og tómstundastarf í nærsamfélaginu, hvers lags þjónustu sveitarfélög bjóða upp á og að samfélagið taki vel á móti þeim. Við viljum að Garðabær sé í fremstu röð í inngildandi vinnubrögðum og að það verði komið á miðlægri móttökuáætlun fyrir nemendur sem eru með íslensku sem annað tungumál og fjölskyldur þeirra. Við erum öll í sama liðinu Í þau fjölmörgu ár sem við höfum starfað bæði í leik- og grunnskólum höfum við ekki hitt eina manneskju sem þar starfar, sem er ekki að gera sitt besta og með hagsmuni barnanna í fyrirrúmi. Við höfum heldur ekki hitt foreldra sem vilja ekki það allra besta fyrir barnið sitt. Við erum öll í sama liðinu, við viljum að börnunum okkar farnist vel og að þeim sé mætt þar sem þau eru stödd. Það skiptir ekki máli hvaða litrófi þau tilheyra, hvort þau eru sterkir námsmenn, með frávik í þroska, með flóknar greiningar, félagslega sterk eða slök, með hegðunarvanda eða fyrirmyndarnemendur. Þau eru öll okkar. Þau hafa öll sama réttinn til þess að þeim sé mætt í skólakerfinu okkar. Við vitum að við erum með fólkið á gólfinu til þess að sinna því, því það gerir það nú þegar með tilheyrandi álagi. Það er kominn tími til þess að við grípum öll börnin okkar. Ekki flest heldur ÖLL. Hvert ár sem líður og ekki er brugðist við getur haft mikil áhrif á líf barna. Við höfum ekki efni á að bíða og því eru skólamálin í forgangi hjá okkur í Samfylkingunni. Höfundar skipa 3. og 7. sæti Samfylkingarinnar í Garðabæ í komandi sveitastjórnarkosningum og starfa í grunnskólum í bænum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Samfylkingin Garðabær Mest lesið Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun