Kaupa CCP aftur frá Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2026 08:16 Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. CCP Stjórnendur íslenska fyrirtækisins CCP hafa gert samkomulag við forsvarsmenn móðurfélags þess frá Suður-Kóreu, um að kaupa fyrirtækið aftur, sex árum eftir að það var selt til Pearl Abyss. Kaupvirðið er sagt vera fimmtán milljarðar króna en fyrirtækið var á sínum tíma selt fyrir 29 milljarða.
Í frétt Viðskiptablaðsins segir að gera megi ráð fyrir að Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri og stofnandi CCP, leiði kaupin. Pearl Abyss keypti CCP fyrir sex árum síðan í samkomulagi sem hefði getað leitt til kaupa upp á 46 milljarða króna. Endanlegt kaupverð var þó um 29 milljarðar þar sem CCP stóðst ekki ákveðin afkomuskilyrði. Sjá einnig: Kóreskur leikjaframleiðandi kaupir CCP á 46 milljarða króna Síðan þá hefur CCP verið rekið með tapi og vildu forsvarsmenn PA létta á „fjárhagslegri byrði“, eins og fram kemur í frétt kóreska miðilsins Inven Global, sem birt var þann 30. apríl. Eftir nánari skoðun var ákveðið að selja CCP til núverandi stjórnenda félagsins fyrir 120 milljónir dala, sem samsvarar um fimmtán milljörðum króna. CCP er hvað þekktast fyrir leikinn EVE Online en fyrirtækið hefur í gegnum árin gefið út nokkra aðra leiki sem flestir tengjast söguheimi EVE. Sjá einnig: Frá Seðlabankanum í sýndarheima CCP Pearl Abyss gaf nýverið út leikinn Crimson Desert, sem hefur slegið í gegn víða um heim. Hann hefur selst í meira en fimm milljónum eintaka, meira en nokkur annar leikur frá Suður-Kóreu. Það og sala CCP mun hafa bætt stöðu fyrirtækisins til muna, samkvæmt áðurnefndri tilkynningu.
Suður-Kórea Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira