Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen skrifar 8. maí 2026 11:46 Hvað er málið með fréttamenn og umfjöllun um skólamál? Er engin vinna lögð í neitt lengur? Þegar ég skrifa þessa grein er mér ennþá heitt í hamsi eftir lestur greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær: Nemendum með A stórfjölgar á milli ára. Hér er ekki verið að hafa fyrir því að skoða hvort það sé einhver ástæða á bak við þessar einkunnir heldur niðurstöðum hent út án nokkurra rýningar. Ef fréttamaður hefði haft fyrir því að spyrja þá hefði hann mögulega fengið þau svör að u.þ.b. 1/3 nemenda í Garðaskóla klárar stærðfræði 10. bekkjar við lok 9. bekkjar og tekur einn fjölbrautaráfanga í 10. bekk ásamt því að læra betur og kafa dýpra í allt þyngsta efnið sem tekið er fyrir í 10. bekk í venjulegri ferð. Sama á við síðan við um u.þ.b. 1/5 af árganginum í ensku og íslensku. En í staðinn er verið að gefa í skyn að um einkunnarverðbólgu sé að ræða. Umræða er mikilvæg og enginn fagnar henni meira en grunnskólakennarar en léleg fréttamennska og illa hugsuð umræða er óþolandi! Skilgreiningin á bak við A er að nemandi kunni meira en ætlast er til af honum við lok 10. bekkjar. Nemendur Garðaskóla sem fá A gera það. Þetta er ekkert annað en æsifréttamennska og þarna er verið að gefa í skin einkunnarverðbólgu sem á ekki rétt á sér í þessu tilfelli a.m.k. Svörin frá Morgunblaðinu við þessari grein voru þau að Garðaskóli var fyrstur að skila af sér tölum og þær þóttu svo athyglisverðar að það var ákveðið að henda þeim út í „cosmosið“ án þess að rýna meira í þær. Sem sagt af því að skólastjórnendur voru fljótir til að svara og höfðu ekki fyrir því að senda neinar skilgreiningar með sjálfir af eigin frumkvæði að þá var ekkert rýnt í upplýsingarnar frekar. Ég hélt að skilgreininginn á blaðamennsku væri að þar væri kafað ofan í kjölinn og gögnin rýnd áður en þau væri birt. Hér virðist vera aðal málið að æsa fólk upp með birtingu frétta (fá sem flest klikk), sem vissulega hefur tekist hér í mínu tilfelli a.m.k. Sem kennari af líf og sál þá einfaldlega þoli ég ekki ófagleg heitin í allri umræðu um skólamál þessa dagana þar sem frösunum er hent út í loftið án ábyrgðar til þess eins að búa til usla og kalla það fréttamennsku. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnheiður Stephensen Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar