ASI & BSRB spurðu: „Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu?” Ólafur Grétar Gunnarsson og Helgi Viborg skrifa 11. maí 2026 13:51 Við fögnum því að formenn stéttarfélaga láti sér málefni leikskólabarna varða. Hér að neðan nefnum við atriði sem okkur langar að vekja athygli á. E.coli-hópsmitið á Mánagarði á ákærusviði – Þrír með réttarstöðu sakbornings Þrír eru með stöðu sakbornings að sögn lögreglu. Líf barna hékk á bláþræði vegna sýkingarinnar á sínum tíma. Á annan tug barna þarf að vera undir eftirliti lækna alla ævi.RÚV 21. janúar 2025 49 af 67 leikskólum voru með skerta þjónustu í fyrra Af 67 leikskólum sem Reykjavíkurborg rekur þurftu 49 að skerða þjónustu vegna manneklu í fyrra. Foreldri segir ástandið skapa álag á starfsfólk og heimilin.RÚV 27. mars 2025 „Öll kerfin sem áttu að vernda barnið brugðust“ Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir, segir að umfjöllun Kveiks um meint kynferðisbrot á leikskólanum Múlaborg, verði að leiða til breytinga á þeim kerfum sem eiga að vernda börn.RÚV 24. nóvember 2025 „Tíðni áfalla á Íslandi er mjög há” Ég held að við eigum ekki að sætta okkur við að svona er þetta bara. Held að við eigum að reyna að rýna í hvers vegna erum við með svona mikið af áföllum. Kastljós 17. mars 2026. Úr viðtali við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Margréti Ólafíu Tómasdóttur, heimilislækni. Þetta voru dæmi sem gefa þjóðinni innsýn í hvernig staðan á okkar barnakúltúr er í dag. Í grein formanna ASÍ og BSRB er gerð athugasemd við að sveitarfélög hafi breytt gjaldskrám. Breytingunum er ætlað að jafna umönnunarbyrði á milli leikskóla og heimila. Í greininni er einnig sagt frá niðurstöðu úr skýrslu Varðar um að 49% leikskólastarfsfólks geti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skulda, 34% búa við félags- og efnislegan skort og 38% mælast með slæma andlega heilsu. Í skýrslu forsætisráðuneytisins, um brúun umönnunarbilsins, kemur fram að leikskólaplássum hefur fjölgað um 5.000 frá því í byrjun þessarar aldar, en nær öll fjölgunin er vegna barna á öðru og þriðja aldursári. Fram kemur að álagið á leikskólum á Íslandi er meira en í nágrannalöndunum m.a. vegna lengdar dvalartíma og skorts á stuðningi við starfsfólk. Auk þess kemur fram að það er skortur á stuðningi við foreldra á fyrstu 1000 dögunum. Í skýrslunni kemur einnig fram að leikskólaskólar í Reykjavík séu ódýrastir. Foreldrar í Reykjavík greiða 2,4% af kostnaði leikskóla en í OECD ríkjunum greiða foreldrar að meðaltali 6%. Árið 2002 greiddu foreldrar í Reykjavík 33,45% af rekstrarkostnaði leikskóla en greiða í dag 2,4% af kostnaði. Í erfiðleikum sínum að sinna leikskólastarfi hafa sveitarfélög mögulega látið pólitík ráða för í stað bestu þekkingar. Eðlilegt er að spyrja sig nokkurra spurningar í þessu samhengi. Hvers vegna hefur kostnaðarþátttaka foreldra minnkað svona mikið á síðustu árum? Hver væri staða leikskóla ef hlutdeild foreldra í kostnaði hefði ekki lækkað um 90% frá árinu 2002? Hugmyndafræðin á bak við þessa kostnaðarlækkun er óljós sérstaklega vegna þess að leikskólinn virðist fjárhagslega sveltur og á í verulegum mönnunarvanda. Hér skal fullyrt að foreldrar vilja gera mikið fyrir sín börn og vilja greiða sanngjarnt verð fyrir góða þjónustu. Það væri frábært ef formenn annarra stéttarfélaga myndu styðja framfarir í leikskólamálum og málefnum foreldra. Tillögur af framförum má finna í fyrrnefndri skýrslu þar sem fram kemur hvernig hin Norðurlöndin brúa umönnunarbilið auk skýrslunnar sem nefnd er hér að neðan. Hvernig væri nú að við tækjum öll höndum saman og ynnum sameiginlega að því að fjölmiðlar geti flutt jákvæðar fréttir af börnunum okkar? Fyrstu 1000 dagar barnsins á Norðurlöndunum Geðheilsa og vellíðan á fyrstu æviárunum: Framtíðarsýn og tillögur að aðgerðum Júní 2021 Helgi Viborg sálfræðingur Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu-og hjónaráðgjafi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Grétar Gunnarsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar