Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Árni Sæberg skrifar 12. maí 2026 10:11 Skúli Tómas starfaði um tíma hjá Landspítalanum í Fossvogi eftir að málið kom upp en eftir að ákæra var gefin út afþakkaði spítalinn vinnuframlag hans. Vísir Héraðssaksóknari telur Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi með því að sjá til þess að henni yrðu gefin morfín og morfínskyld lyf. Þung lyfjameðferð hafi orðið til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar. Börn hennar krefjast samtals tuga milljóna króna í miskabætur.
Þetta segir í ákæru á hendur Skúla Tómasi, sem Vísir hefur undir höndum en greint var frá útgáfu ákærunnar í lok mars. Í henni segir að hann sé ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, með því að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi. Þung lyfjameðferð Hún hafi verið lögð inn á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fimmtudaginn 1. ágúst 2019, þar sem Skúli Tómas var yfirlæknir og bar ábyrgð á læknisfræðilegri meðferð Dönu, en hann hafi sett Dönu á lífslokameðferð sama dag þrátt fyrir að hún hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm og tekið ákvörðun um og séð til að Dönu yrðu gefin slævandi lyf, það er morfín og morfínskyld lyf, Leponex (clozapine) og Dormicum (midazolam). „Leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar á sjúkrahúsinu laugardaginn 19. október 2019.“ Fimm milljónir hvert Þá segir í ákærunni að fyrir hönd fimm uppkominna barna Dönu sé gerð miskabótakrafa á hendur Skúla Tómasi upp á fimm milljónir króna til handa hverju þeirra. Þá krefjast þau samanlagt tæplega 900 þúsund króna í skaðabætur vegna útfararkostnaðar. Ákæran verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness eftir viku.
Læknamistök á HSS Heilbrigðismál Lögreglumál Dómsmál Tengdar fréttir Skúli Tómas kominn með lækningaleyfi Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er kominn með lækningaleyfi á nýjan leik. Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga. 8. júlí 2024 17:35 Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Skúli Tómas Gunnlaugsson segir erfiða tíma fram undan. Hann segir ánægjulegt að fimm af sex málum hafi verið felld niður en það sé á sama tíma mikið áfall að ákært sé vegna eins þeirra. 31. mars 2026 12:42 Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður. 31. mars 2026 11:29 Ætla að fara fram á frávísun málsins Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar. 31. mars 2026 18:45 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira
Skúli Tómas kominn með lækningaleyfi Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er kominn með lækningaleyfi á nýjan leik. Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga. 8. júlí 2024 17:35
Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Skúli Tómas Gunnlaugsson segir erfiða tíma fram undan. Hann segir ánægjulegt að fimm af sex málum hafi verið felld niður en það sé á sama tíma mikið áfall að ákært sé vegna eins þeirra. 31. mars 2026 12:42
Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður. 31. mars 2026 11:29
Ætla að fara fram á frávísun málsins Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra Skúla Tómas Gunnlaugsson lækni fyrir manndráp af ásetningi vegna andláts 73 ára konu sem var í hans umsjá á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Verjandi hans ætlar að fara fram á frávísun í málinu. Uppkomin börn konunnar sem er ákært vegna gagnrýna harðlega að Skúli Tómas hafi starfað við Landspítalann meðan mál hans var til rannsóknar. 31. mars 2026 18:45