Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. maí 2026 10:20 Vextir voru hækkaðir hjá Arion banka og Íslandsbanka fyrir helgi og nú hefur Landsbankinn fylgt á eftir. Vísir/vilhelm Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafi reynst þrálátar. Að mati deildarinnar muni það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars. Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. maí. Nefndin hækkaði vexti um 0,25 prósentustig við síðustu ákvörðun og standa meginvextir bankans nú í 7,5%. „Þá var gefið sterklega í skyn að hækkunarferlið sem hófst í mars þyrfti að halda áfram og við spáum því að nefndin hækki vexti á ný í maí, um 0,25 prósentustig. Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og mældist almennt undir væntingum. Verðbólga er því sú sama og þegar nefndin hittist síðast og raunstýrivextir nokkurn veginn þeir sömu miðað við liðna verðbólgu. Nefndin tók skýrt fram við síðustu ákvörðun að hún væri tilbúin að herða taumhaldið enn frekar og teljum við því líklegt að svo verði.“ Verðbólga hjaðnað ef ekki væri fyrir bensínið Þá segir í tilkynningunni á vef bankans að ef rýnt sé í framlag ólíkra liða sjáist að þrátt fyrir að verðbólga hafi staðið í stað frá síðasta fundi peningastefnunefndar hafi framlag flestra liða til verðbólgu dregist saman frá síðasta fundi nefndarinnar. „Bensín og aðrar innfluttar vörur vega 0,62 prósenstustig til hækkunar verðbólgu á milli funda, meðan allir aðrir liðir til samans vega nánast jafn mikið til lækkunar. Að öðru óbreyttu hefði verðbólga því mælst 4,6 prósent ef bensín og aðrar innfluttar vörur hefðu ekki hækkað.“ Nefndin geti haft áhrif á væntingar Greiningardeild Landsbankans segir að vissulega hafi stýrivaxtahækkanir á Íslandi ekki áhrif á heimsmarkaðsverð á bensíni. Þær geti þó haft áhrif á verðbólguvæntingar, sem dragi úr verðbólguþrýstingi. Verðbólguvæntingar skipti miklu máli, meðal annars þegar kemur að stöðunni á vinnumarkaði. Ef heimilin geri ráð fyrir meiri verðbólgu geti það haft áhrif á launakröfur þeirra. Á sama hátt geti væntingar fyrirtækja um hærri launakostnað haft áhrif á verðlagningu þeirra. Þannig geti verðbólga orðið þrálátari og viðvarandi. „Ekki hefur tekist að ná niður verðbólguvæntingum. Þvert á móti hafa þær hækkað nokkuð síðan í desember, samhliða aukinni verðbólgu. Við slíkar aðstæður verður erfitt að líta framhjá tímabundnum verðhækkunum sem koma erlendis frá. Það skýrir að okkar mati hvers vegna nefndin hækkaði vexti í mars og er ástæða þess að við teljum líklegt að hún hækki vexti aftur í næstu viku.“
Verðlag Landsbankinn Íslenska krónan Seðlabankinn Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira