FIFA og Sádar í eina sæng Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2026 13:18 Infantino hefur gert styrktarsamning við PIF, fjárfestingasjóð Sádi-Arabíu. Harold Cunningham - FIFA/FIFA via Getty Images FIFA hefur gert styrktarsamning við fjárfestingarsjóð Sádi-Arabíu, PIF, sem verður stuðningsaðili komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. PIF bætist við sádíska olíufyrirtækið Aramco sem einn aðalstyrktaraðili mótsins.
Greint var frá samningum á milli aðilanna í gær. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að PIF dró alfarið til baka fjármagn til golfmótaraðarinnar LIV. Spurningar vöknuðu um framtíð fjárfestinga Sáda í íþróttum sem hafa farið vaxandi á ógnarhraða síðustu misseri. PIF er alþjóðlegur fjárfestingasjóður sádíska ríkisins og hefur peningum verið pumpað þaðan í allskyns íþróttatengd verkefni. Stærst eru LIV, Newcastle United á Englandi og eignarhald PIF á liðum í sádísku úrvalsdeildinni í fótbolta. Við tilkynningu á samningnum við FIFA segir að íþróttir séu enn forgangsatriði PIF og að fótbolti sé lykilhlekkur í framtíðarsýn Sádi-Arabíu. Sádar hafa lagt aukna áherslu nýjar fjármögnunarleiðir til að komast undan því að ríkið sé eingöngu komið upp á olíu hvað fjárstreymi varðar. Samningurinn treystir þá enn frekar samband FIFA og sádíska ríkisins. Líkt og áður segir er Aramco, olíufyrirtæki Sádi-Arabíu, orðið einn megin styrktaraðili FIFA. PIF keypti þá stóran hlut í streymisveitunni DAZN í aðdraganda HM félagsliða á síðasta ári og keypti í kjölfarið sjónvarpsréttindi á mótinu fyrir einn milljarð bandaríkjadala. Á sama tíma og sá samningur var í höfn opinberaði Gianni Infantino að Sádi-Arabía myndi halda HM 2034 án alls útboðs og kjörs stjórnar, sem hefð er fyrir. Sádar hafa sætt gagnrýni vegna fjárfestinganna og þær séu liður í íþróttaþvotti ríkisins vegna alvarlegra mannréttindastöðu í Sádi-Arabíu. Íþróttirnar séu nýttar til að hreinsa ríkið af mannréttindastöðunni.
FIFA Sádi-Arabía Sádiarabíski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira