Felldu næðstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2026 13:25 Donald Trump sagði frá árásinni í nótt og gaf hann þá til kynna að Bandaríkjmenn hefðu uppljóstrara innan raða Íslamska ríkisins í Afríku. AP/Mark Schiefelbein Næstæðsti yfirmaður Íslamska ríkisins á heimsvísu var felldur í árás bandarískra og nígerskra hermanna í Nígeríu í nótt. Abu Bilal al-Minuki var mjög valdamikill innan hryðjuverkasamtakanna og hafði spilað stóra rullu í upprisu ISIS í Afríku og þá sérstaklega á Sahel-svæðinu.
Al-Minuki er talinn hafa spilað stóra rullu í því þegar Íslamska ríkið í Vestur-Afríku (ISWAP) varð til með aðskilnaði við Boko Haram árið 2016. Verði dauði hans staðfestur yrði þetta í fyrsta sinn sem tekist hefur að ráða svo háttsettan leiðtoga ISWAP af dögum og gæti það leitt til töluverðrar upplausnar innan hryðjuverkasamtakanna og tveggja deilda þeirra í Afríku, ISWAP og ISIS á Sahelsvæðinu (ISSP) sem eiga nú í samkeppni og jafnvel átökum við önnur hryðjuverkasamtök á Sahel-svæðinu. Al-Minuki er talinn hafa verið mikilvægur milliliður í samstarfi ISWAP og ISSP. Það eru Jama'at Nusrat al-Islam wal-Muslimin (JNIM) sem eru tengd al-Qaeda. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, opinberaði árásina á samfélagsmiðlum í gær og sagði frá því að al-Minuki hefði verið felldur. Í færslu sem hann birti á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, skrifaði Trump að árásin hefði heppnast fullkomlega og að einn virkasti hryðjuverkamaður heims hefði verið felldur. „Abu-Bilal Al-Minuki, næstráðandi hjá ISIS á heimsvísu, hélt að hann gæti falið sig í Afríku en hann vissi þó ekki að við höfðum heimildarmenn sem héldu okkur upplýstum um hvað hann var að gera. Hann mun ekki hrella íbúa Afríku lengur eða hjálpa við að skipuleggja árásir gegn Bandaríkjamönnum,“ skrifaði Trump. Þá sagði forsetinn að með dauða al-Minuki hefði verulega dregið úr getu ISIS á heimsvísu. Í yfirlýsingu frá yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Afríku, AFRICOM, segir að árásin hafi verið gerð í norðausturhluta Nígeríu í nótt. Talið er að þó nokkrir ISIS-liðar hafi verið felldir og þar á meðal séu nokkrir leiðtogar. Engan Bandaríkjamann mun hafa sakað í árásinni. Ekki liggur fyrir í hverju árásin fól í sér en forsvarsmenn AFRICOM hafa birt myndband af árásinni sem virðist hafa verið tekið úr dróna eða eftirlitsflugvél og sýnir loftárás á nokkrar byggingar. Auk þess virðist sem myndbandið sýni skothríð á jörðu niðri. Last night's operation targeted a significant presence of ISIS fighters in Northeastern Nigeria eliminating multiple high value individuals including Abu-Bilal al-Minuki. pic.twitter.com/lNj4AMSITH— U.S. Africa Command (AFRICOM) (@USAfricaCommand) May 16, 2026 Bandaríkjamenn felldu í fyrra leiðtoga Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi. Sá hét Abdallah Makki Muslih al-Rifai og var næstráðandi ISIS á heimsvísu á undan al-Minuki. Sjá einnig: Felldu næstráðandi leiðtoga Íslamska ríkisins Frá því bandarískir hermenn duttu í „lukkupottinn“ og felldu Abu Bakr al-Baghdadi, stofnanda Íslamska ríkisins, í áhlaupi í Sýrlandi árið 2019, hafa leiðtogar hryðjuverkasamtakanna ekki verið langlífir. Þeir hafa verið felldir í áhlaupum og loftárásum, hver á fætur öðrum, á undanförnum árum. Núverandi leiðtogi Íslamska ríkisins kallast Abu Hafs al-Hashimi al-Qurashi og varð hann kalífi í ágúst 2023. Tiltölulega lítið hefur farið fyrir honum síðan þá.
Bandaríkin Nígería Hernaður Hryðjuverkastarfsemi Donald Trump Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Sjá meira