Skikkaðir í einangrun fram að HM Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 14:02 Chancel Mbemba er fyrirliði kongóska liðsins. Ulrik Pedersen/DeFodi Images via Getty Images Landsliðsmenn Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þurfa að einangra sig fram að fyrsta leik liðsins á HM í fótbolta vegna ebólu í ríkinu. Þetta segir Andrew Giuliani, yfirmaður starfshóps Hvíta hússins sem sér um komandi heimsmeistaramót.
Kongóska liðið þurfi að einangra sig næsta 21 dag, fram að móti, ellegar eigi liðið á hættu að vera meinuð innganga í Bandaríkin. Giuliani segir í samtali við ESPN að liðið þurfi að vera í búbblu í Belgíu, þar sem það undirbýr sig fyrir komandi átök. „Við höfum verið mjög skýr við Kongó að þeir verði að viðhalda bubblu í 21 dag áður en þeir geta síðan komið til Houston 11. júní,“ sagði Giuliani. „Við höfum líka gert það mjög skýrt við stjórnvöld í Kongó að þeir þurfa að viðhalda bubblunni eða þeir eiga á hættu að geta ekki ferðast til Bandaríkjanna. Við getum ekki verið skýrari.“ Allir leikmenn kongóska liðsins spila utan heimalandsins, sem og franskur þjálfari liðsins, Sebastien Desabre. Örfáir í starfsliði landsliðsins eru búsettir í Kongó. „Ef það eru aðrir sem bætast við hópinn, þá þurfa þeir að hafa sérstaka bubblu frá því liði. Ef þeir enda á að koma, og einhver þessara einstaklinga fær einkenni, þá eru þeir að stofna öllu liðinu í hættu á að geta komið og keppt á þessu heimsmeistaramóti,“ sagði Giuliani. Ebólufaraldur geisar í Kongó og hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýst yfir neyðarástandi. Bandaríkin hafa sett á ferðabann fólks frá Kongó, Úganda og Suður-Súdan næstu 30 daga vegna faraldursins. Í það minnsta 130 hafa látist vegna ebólusmits á svæðinu síðustu daga. Landslið Kongó mætir Danmörku í æfingaleik í Belgíu þann 3. júní og Síle á Marbella á Spáni þann 9. júní. Liðið er í K-riðli heimsmeistaramótsins með Portúgal, Kólumbíu og Úsbekistan og spilar sinn fyrsta leik við Portúgal í Houston þann 17. júní.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin Austur-Kongó Ebóla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira