Rubio vongóður um vopnahlé Sigurgeir Þorkelsson skrifar 25. maí 2026 10:19 Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er staddur í opinberri heimsókn á Indlandi. Getty Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi.
Ítarlega var farið yfir stöðu málsins hér á Vísi í gærkvöldi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að samninganefndirnar ættu ekki að ana að neinu. BBC greinir frá því að talið sé líklegt að samkomulagið muni fela í sér sextíu daga framlengingu á vopnahléi, að Hormús-sund verði opnað á ný og í kjölfar þess fari fram frekari samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írans. Olíuverð hafi lækkað hratt í kjölfar yfirlýsinga forsetans og hlutabréfavísitölur í Asíu hækkað við opnun markaða í morgun. Rubio vongóður „Vinna er enn yfirstandandi, eins og ég hafði sagt þá héldum við að við hefðum fréttir að færa í gærkvöldi. En kannski í dag,“ sagði Rubio. „Það sem við erum nú komin með á samningaborðið er sannfærandi leið að opnun sundsins,“ sagði Rubio, og vísaði þar til Hormús-sunds, milli Persaflóa og Indlandshafs. Um sundið fer um fimmtungur olíu- og jarðgasflutninga heimsins og hafa írönsk stjórnvöld haldið því lokuðu frá upphafi stríðsins. Samningagerð við Íran erfið fyrir Trump pólitískt Mögulegur samningur er þó farinn að vekja ugg meðal nafnþekkra Repúblikana. Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður frá S-Karólínu og náinn bandamaður Trumps, varaði í gær við að ganga þannig frá samningi að Íran sæti eftir sem stórveldi í þessum heimshluta. Þá sagði Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður frá Texas, að stefni í „stórkostleg mistök“ út frá því sem greint hefur verið frá um samningaviðræðurnar. Trump hvergi banginn Trump forseti lagði ekki í bollalengingar þegar hann svaraði fyrir sig á miðli sínum, Truth Social. „Hlustið á þessa aula, gagnrýna eitthvað sem þeir vita ekkert um.“ „Ef ég sem við Íran verður það góður, alvöru samningur.“ Þá ítrekaði Trump í innleggi sínu að forsenda samninga væri fullur skilningur íranskra stjórnvalda á því að þau muni aldrei fá að þróa kjarnorkuvopn.
Donald Trump Bandaríkin Indland Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. 24. maí 2026 23:57 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. 24. maí 2026 23:57