Býr sig undir það versta en vonar það besta Eiður Þór Árnason og Telma Tómasson skrifa 27. maí 2026 16:43 Þuríður Lillý Sigurðardóttir er sauðfjárbóndi á Sléttu á Reyðarfirði. aðsend Bændur á Austurlandi og Norðurlandi hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga vegna norðaustanhrets sem væntanlegt er á morgun. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Austurland að Glettingi og þá hefur lögreglan á Norðurlandi vestra beðið bændur um að huga að lambfé.
Bændur á Norðurlandi og Austurlandi hafa þurft að þola slæmt óveður í byrjun júní síðastliðin tvö ár. Þuríður Lillý Sigurðardóttir er sauðfjárbóndi á Sléttu á Reyðarfirði. Hún hefur gripið til ráðstafana vegna veðursins á morgun og hefði alla jafna verið búin að hleypa meira fé út. „Manni finnst frekar ótrúlegt að hugsa til þess, af því að núna er 15 stiga hiti og sól og logn. Það er bara Spánarveður,“ segir hún í samtali við fréttastofu. Eyjólfur Ingvi Bjarnason hjá Bændasamtökunum.aðsend Eyjólfur Ingvi Bjarnason er formaður deildar sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands. Hann segir lömb víða komin út þar sem ekki er húspláss fyrir allt féð á mörgum bæjum. Bændur hafi þá gripið til þess ráðs að búa til skjól fyrir þau. Veðurspáin sé mögulega vægari en hún leit út í byrjun en bleytan, slyddan og lágt hitastig geti verið slæm fyrir lambfé. Eyjólfur bætti við að sauðburður standi nú víða sem hæst og bændur verði á tánum. Margir séu búnir að koma sér upp góðu skjóli eftir óveðrið síðustu tvö ár. Veltur á úrkomunni Þuríður á ekki von á aftakaveðri á Reyðarfirði í norðaustanáttinni. „Ég er að vona að við sleppum ágætlega frá þessu en maður samt býr sig undir þetta.“ Þuríður reiknar með því að sleppa við slydduna en það velti þó allt á því hversu mikil úrkoman verður og hversu lengi veðrið standi yfir. „Maður býr sig undir það versta en vonar það besta.“ Hluti af því sé að tryggja að lömbin hafi nægt fóður og skjól. Þuríður situr einnig í bæjarstjórn Fjarðabyggðar.aðsend Komin með átta hundruð lömb Þuríður er enn með öll yngri lömbin innandyra og þau elstu sem eru úti geta gengið inn í skjól ef á þarf að halda. Þá segist hún hafa sett út nóg af fóðri til að tryggja að þau hafi öll greiðan aðgang að því uppi við húsin og skjólið. „Ég geymdi það að setja á fjall, það er allt ennþá annað hvort inni heima eða við skjól. Að öllu jöfnu þá værum við búin að setja miklu miklu meira út ef þessi veðurspá hefði ekki verið yfirvofandi.“ Sauðburður sé að klárast og aðeins nítján ær eftir en Þuríður er með 500 fullorðnar á bænum: „Við erum komin með um 800 lömb.“ Vonar að veðrið verði ekki jafn slæmt og 2024 Þuríður og maðurinn hennar fundu vel fyrir óveðrinu síðustu tvö ár. „Sérstaklega árið þar á undan. Það var verra og við lentum alveg í því. Bæði hýstum við fé og það er mjög erfitt að hýsa fé sem er búið að vera úti. Þá hanga þær á móður sinni og þær fá spenasæri og fóru bara mjög illa, aðallega ærnar. Lömbin eru harðari af sér.“ „Svo eru líka tún og annað sem geta kalið. Við urðum ekki fyrir miklu tjóni, við misstum einhverjar þrjár ær sem voru samt við skjól og allt svoleiðis, veðrið var bara þannig. Við höfum sloppið vel miðað við marga.“ Um 800 lömb hafa komið í sauðburði þetta árið. aðsend Ekki er gert ráð fyrir að veðrið verði jafn slæmt á morgun. „Það er útlit fyrir að þetta verði betra núna og náttúrulega er allur gróður kominn mjög vel af stað þannig að maður er að vona að þetta verði bara smá rigning og búið, rigni ofan í áburðinn. Það væri svona besta niðurstaðan,“ segir Þuríður. Hún vonar að hægt verði að halda áfram með vorverkin og að það verði sem minnst úr veðrinu næstu tvo daga. „Bændur eru náttúrulega farnir að bera á og plægja tún og annað. Maður er alveg kominn í vorgírinn í þessum sumarham sem er núna. Þannig að vonandi verður þetta sem minnst alls staðar.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Landbúnaður Veður Fjarðabyggð Sauðfé Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Sjá meira