Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Jón Þór Stefánsson skrifar 29. maí 2026 10:02 Landsréttur hefur staðfest nálgunarbannið. Vísir/Vilhelm Karlmaður sætir nú nálgunarbanni gagnvart fullorðnum syni sínum sem ákvað í ársbyrjun í fyrra að slíta á öll tengsl við föður sinn. Faðirinn er grunaður um að áreita son sinn ítrekað síðan og eru aðrir fjölskyldumeðlimir sagðir hafa tekið þátt.
Með nálgunarbanninu, sem gildir í sex mánuði, er föður þessum meinað að koma í námunda við heimili sonarins, og honum bannað að veita syninum eftirför, nálgast hann á almannafæri eða setja sig í samband við hann með öðrum hætti. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur hafa staðfest ákvörðun lögreglunnar um að setja manninn í nálgunarbann. Í úrskurði þess efnis er haft eftir syninum að hann óttist föður sinn. Þá hafi áreitni hans aukist eftir að hann sleit á öll tengsl við föðurinn í byrjun árs 2025 vegna erfiðra samskipta. Í raun hafi hún farið stigmagnandi síðan. Dulin hótun í tölvupósti Svo virðist sem sonurinn hafi fyrst tilkynnt um málið í október síðastliðnum. Faðirinn hafi þá ítrekað verið búinn að hringja í soninn, sem hafði lokað á símanúmer hans, úr óþekktum símanúmerum. Hann hafi komið fyrir utan heimili hans, haft samband við tengdaforeldra hans, sent ítrekaða tölvupósta til hans, eiginkonu hans, og annarra fjölskyldumeðlima. Póstar þessir hafi innihaldið skilaboð með fullyrðingum um að sonurinn og eiginkona hans væru andlega veik. Að mati sonarins fólst dulin hótun í einum þeirra, þar sem gefið var til kynna að vegið yrði að starfsheiðri hans þar sem faðirinn hafi talað um að hann myndi „á endanum neyðast til að tala um þeirra samskipti við kollega og það yrði slæmt til afspurnar og fyrir orðspor hans“ í ónefndum starfsgeira „ef hegðun hans myndi spyrjast út.“ Lét yfirmanninn ekki í friði Um viku eftir að málið var fyrst tilkynnt til lögreglu barst henni tilkynning um mann, föðurinn, að áreita starfsmenn á ónefndum vinnustað. Þá mun hann hafa mætt á vinnustað sonarins. Sonurinn, sem sagðist hafa sett skýr mörk við föðurinn og ekki vilja eiga í samskiptum við hann, sagði föðurinn hafa elt sig og verið mjög ágengan. Þá hafi faðirinn rætt við yfirmann sonarins, neitað að láta hann í friði og ekki farið fyrr en lögregla var kölluð til. Neitaði að hætta Í nóvember í fyrra tilkynnti sonurinn og eiginkona hans aftur um hegðun föðurins. Þá ræddi lögreglan við föðurinn og bað hann um að láta af áreitinu gagnvart syninum og fjölskyldu hans. Hann mun þá hafa neitað að verða við þeirri beiðni, haldið því fram að sonurinn væri andlega veikur og að hann væri að reyna að hjálpa honum. Hann sagði eiginkonu sonarins vera eina af ástæðum þess að samskipti milli þeirra hefðu rofnað. Þá mun faðirinn hafa lýst áformum sínum um að safna saman fjölskyldumeðlimum og fara heim til sonarins til að ræða við hann. Fyrir vikið var símanúmer föðurins sett í vöktun hjá lögreglu. Mamma og amma taka þátt Aftur var tilkynnt um að faðirinn væri að áreita soninn á vinnustað hans í janúar. Og svo var tilkynnt um hann fyrir utan heimili sonarins í apríl. Í kjölfarið greindu sonurinn og eiginkona hans frá meintri þátttöku annarra fjölskyldumeðlima í áreitinu, móður og ömmu sonarins. Þær hefðu, ásamt föðurnum, nýverið ekið ítrekað í kringum heimili þeirra, komið að húsinu, og hringt dyrabjöllunni endurtekið. Nokkrum dögum síðar hafði eiginkonan samband við lögregluna og sagði að faðirinn og amman væru fyrir utan heimili þeirra. Eiginkonan var þá heima með barn þeirra og sagðist mjög smeyk. Fram kemur að sonurinn hafi þurft að taka sér veikindaleyfi frá vinnu vegna álags og streitu sem málið hafi valið honum. Þá hefur hann nú lagt fram kæru á hendur föður sínum og fleiri fjölskyldumeðlimum fyrir umsáturseinelti.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira